fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Fordæma stríðsyfirlýsingu Samfylkingarinnar

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 12. nóvember 2020 09:03

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Staksteinar Morgunblaðsins í dag fara hörðum orðum um yfirlýsingar Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar, þess efnis að hart verði látið mæta hörðu í stjórnarskrármálum á Alþingi í vetur.

„Logi Einarsson formaður sagði í gær að í stjórnarskrármálum yrði „bara hreinlega stál í stál í þinginu í vetur“ og boðaði í þeim efnum „bara fullt stríð“!“

Staksteinar hvetja aðra flokka til að forðast að eyða vetrinum í stríðsátök Samfylkingar því taka þurfi höndum saman um að koma þjóðinni í gegnum kórónuveirufaraldurinn:

„Á meðan stríðsdansinn dunar hjá Samfylkingu verður að binda vonir við að aðrir og ögn heilsteyptari flokkar taki höndum saman um að sinna þjóðþrifamálum, ekki síst að koma landinu
klakklaust í gegnum kórónuveirufaraldurinn, í stað þess að sóa vetrinum í stríðsátök Samfylkingar.“

Ekki lítur út fyrir að samstaða sé að nást á Alþingi um breytingar á stjórnarskrá. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, sagði fyrir skömmu í viðtali við Kastljós að hann væri búinn að eyða of miklum tíma í þetta mál.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Í gær

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Í gær

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli