fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Birtir til fyrir krabbameinssjúka – Svandís samdi við Ljósið

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 9. janúar 2020 16:30

Heilbrigðisráðherra og forstjóri Sjúkratrygginga Íslands

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjúkratryggingar Íslands hafa gert þjónustusamning við Ljósið um endurhæfingarþjónustu við fólk sem greinst hefur með krabbamein. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðfest samninginn sem tók gildi 1. janúar síðastliðinn og gildir til ársloka 2023. Alls eru 220 milljónir króna tryggðar rekstri Ljóssins í fjárlögum þessa árs. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Ljósið var formlega stofnað í janúar árið 2006. Markmið þess frá upphafi hefur verið að sinna endurhæfingu og veita stuðning þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra. Ljósið er viðurkennd heilbrigðisstofnun samkvæmt skilgreiningu laga og heyrir undir eftirlit Embættis landlæknis. Þjónusta Ljóssins er þverfagleg og einstaklingsmiðuð og felst m.a. í iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, sálfræðiþjónustu, næringarráðgjöf og félagslegri virkni.

Fyrstu árin í starfsemi Ljóssins voru þjónustusamningar um starfsemina við Tryggingastofnun ríkisins og einnig voru um tíma samningar milli Ljóssins og ráðuneyta félags- heilbrigðis- og menntamála. Frá árinu 2011 hafa verið samningar milli Ljóssins og Vinnumálastofnunar ásamt ýmsum öðrum samningum um endurhæfingar.

Ljósið hefur því í gegnum tíðina þurft að tryggja rekstur sinn frá ári til árs með þjónustusamningum, gjöfum og söfnunarfé. Rekstrargrundvöllurinn hefur því aldrei verið fyrirsjáanlegur til lengri tíma, með tilheyrandi óvissu fyrir rekstraraðila, starfsfólk og síðast en ekki síst notendur þjónustunnar.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir fagnaðarefni að þessi mikilvæga þjónusta sé nú veitt á öruggum forsendum þar sem rekstrarféð er tryggt og þjónustan og umgjörðin um hana skilgreind í heildstæðum samningi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki