fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Tæplega 190 milljónir í boði fyrir félagasamtök

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 10. janúar 2020 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Utanríkisráðuneytið hyggst úthluta 186,5 milljónum króna til félagasamtaka á þessu ári vegna verkefna á sviði þróunarsamvinnu og mannúðarmála. Af þessari fjárhæð á að ráðstafa 121 milljón króna til mannúðarverkefna og 62,5 milljónum til þróunarsamvinnuverkefna. Opið er fyrir umsóknir allt árið til mannúðarverkefna, með fyrirvara um að fjárheimildir kunni að vera fullnýttar áður en árið er liðið, en umsóknarfrestur um styrki til þróunarsamvinnuverkefna er til mánudagsins 16. mars.

Stór hluti framlaga til mannúðarverkefna er eyrnamerktur verkefnum vegna neyðarinnar í Sýrlandi, eða 76,5 milljónir. Slík verkefni þurfa að vera í samræmi við neyðaráætlun Samræmingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) eða viðbragðsáætlun Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Styrkupphæðir geta numið allt að 95% af heildarkostnaði mannúðarverkefna og ráðuneytið mun leitast við að svara umsóknum innan þriggja vikna frá móttöku.

Framlög til þróunarsamvinnuverkefna nema 62,5 milljónum að þessu sinni. Heimilt er að veita styrk til sama verkefnis til allt að fjögurra ára, með fyrirvara um fjárheimildir fjárlaga hvers árs. Styrkupphæð þróunarsamvinnuverkefna getur numið allt að 80% af heildarkostnaði við verkefnið. Umsóknir til framlaga til þróunarsamvinnuverkefna þurfa að berast fyrir miðnætti mánudagsins 16. mars. Áætlað er að niðurstöður ráðherra um þessa styrki liggi fyrir í maí.

Athygli er vakin á því að félagasamtök þurfa að vera skráð í almannaheillafélagaskrá til þess að vera styrkhæf.

Leiðbeiningar og nánari upplýsingar varðandi umsóknir er að finna á vef stjórnarráðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki