fbpx
Fimmtudagur 12.júní 2025
Eyjan

Heilbrigðiseftirlitið: Þetta þurfa fyrirtæki að hafa í huga við heimsendingar – „Enginn heimsendir“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 3. apríl 2020 11:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í kjölfar COVID-19 og samkomubanns hafa veitingastaðir brugðið á það ráð að bjóða upp á heimsendingaþjónustu og/eða og heimtöku „take-away“ á veitingum í síauknum mæli. Eins og gefur að skilja kallar þessi aukna þjónusta við viðskiptavini á nýjar áskoranir fyrir fyrirtækin.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar hefur gefið út hvernig huga þurfi að framkvæmd heimsendinga á vef sínum:

„Huga þarf til að mynda vel að hitastigi og umbúðum en borið hefur á því að matur komi kaldur til viðskiptavina. Einnig hafa borist ábendingar um að veitingar séu heimsendar með einkabílum, en slíkt er ekki heimilt. Í einkabifreiðum geta hafa verið dýr, veik börn og jafnvel fólk í sóttkví. Það flokkast því undir almannavarnir að hafa þessa hluti í lagi. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vill því að gefnu tilefni koma áríðandi upplýsingum til matvælafyrirtækja til að tryggja matvælaöryggi.“

Eftirfarandi þarf að hafa í huga:

Starfsleyfi

Þau fyrirtæki sem standa að flutningi matvæla þ.m.t. heimsendingaþjónustu skulu hafa starfsleyfi til þess. Ef veitingastaður ætlar að bjóða upp á heimsendingu þarf starfsleyfi viðkomandi veitingastaðar einnig að ná yfir heimsendingaþjónustu.

Húsnæði

Húsnæði matvælafyrirtækis skal vera í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar um atvinnuhúsnæði og hafa hlotið samþykki byggingarfulltrúa fyrir starfseminni.

Matvælafyrirtækið skal hafa nægilegt geymslupláss, þ.m.t. fyrir kæli- og frystivörur, heitan mat og umbúðir.

Óheimilt er að geyma matvæli og umbúðir utandyra.

Flutningstæki og búnaður

Nota skal þar til gerð flutningstæki til að flytja matvæli, s.s. bíla með kæli- eða frystibúnaði, hitakassa/-töskur, o.fl.  Ekki er heimilt að nota einkabifreiðar. Flutningstæki skulu vera auðveld í þrifum og vera á þrifaáætlun.  Halda þarf utan um þrif með skráningum.

Þrífa þarf flutningstæki áður en þau eru notuð til að flytja matvæli og eftir hverja notkun.

Tryggja þarf að matvæli mengist ekki eða spillist við flutning.  Ekki er heimilt að flytja eitthvað annað en matvæli og/eða matvælaumbúðir í sama flutningstækinu.

Til staðar skal vera aðstaða til að þrífa flutningstæki.

Hitastig matvæla

Við flutning matvæla þarf að gæta að hitastigi þeirra.

Kælivörur skal geyma við 0-4°C.

Frystivörur skal geyma við -18°C eða lægra hitastig.

Matvælum sem halda skal heitum, skal halda við 60°C eða hærra.

Takmarkaður tími án hitastýringar er heimilaður ef slík tilhögun er nauðsynleg, t.d. við flutning, svo fremi að matvælaöryggi sé ekki ógnað.

Umbúðir

Umbúðir utan um matvæli skulu vera heilar og þéttar svo matvæli mengist ekki eða spillist við flutning.  Umbúðir skulu ætlaðar fyrir matvæli.

Umbúðir skal geyma þannig að þær óhreinkist ekki eða spillist.

Upplýsingagjöf til neytenda

Tryggja skal að neytendur fái upplýsingar um innihaldsefni matvæla, sérstaklega ofnæmis- eða óþolsvalda, sbr. viðauka II í reglugerð Evrópusambandsins nr. 1169/2011.

Hreinlæti starfsmanna og vinnufatnaður

Umgengnisreglur skulu vera til staðar fyrir starfsmenn og skulu þeir fylgja þeim.

Öll neysla á matvælum, þ.m.t. drykkjum, og notkun tóbaks/rafretta er bönnuð við flutning á matvælum.

Starfsmenn skulu gæta að persónulegu hreinlæti og þvo sér reglulega um hendur með volgu vatni, handsápu og handspritti, s.s.

– Í upphafi vaktar

– Eftir salernisferðir

– Eftir matarhlé

– Þegar hendur hafa óhreinkast

– Áður en farið er í einnota hanska

– Í lok vaktar

– Oftar eftir atvikum

Notkun einnota hanska kemur ekki í staðinn fyrir handþvott.  Minnt er á að einnota hanskar eru einnota.

Starfsfólk skal vera snyrtilegt til fara og klæðast vinnufatnaði.

Matvælafyrirtækið skal útvega starfsfólki sínu vinnuföt og sjá um þrif á þeim.  Þrifin skulu fara fram á þann hátt sem heilbrigðiseftirlitið samþykkir. Ekki er leyfilegt að þvo vinnufatnað starfsmanna í heimahúsi.

Matvælaöryggiskerfi

Matvælafyrirtæki skulu starfrækja matvælaöryggiskerfi (innra eftirlit) sem tekur mið af starfseminni.  Ef matvælafyrirtæki, s.s. matvöruverslun eða veitingastaður, stundar heimsendingu á matvælum þarf umfang matvælaöryggiskerfisins að ná til heimsendingarinnar.  Það er á ábyrgð stjórnanda matvælafyrirtækisins að greina hættur sem fylgja starfseminni og stjórna þeim með viðeigandi búnaði og eftirliti svo að matvælaöryggi sé tryggt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Skrítin skilaboð frá seðlabankastjóra á óvissutímum

Svarthöfði skrifar: Skrítin skilaboð frá seðlabankastjóra á óvissutímum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Unnur forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip

Unnur forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip
Eyjan
Fyrir 1 viku

YAY og Landsbankinn stofna nýtt félag

YAY og Landsbankinn stofna nýtt félag
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Tveggja turna tal

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Tveggja turna tal
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Fyrrverandi þingmaður gengur af göflunum – nýr þingmaður gengur fram af fólki

Svarthöfði skrifar: Fyrrverandi þingmaður gengur af göflunum – nýr þingmaður gengur fram af fólki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK

Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK