fbpx
Þriðjudagur 05.ágúst 2025
Eyjan

Drífa Snædal: „Ekki til í þennan árvissa viðburð án þess að krefjast róttækra breytinga“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 28. ágúst 2019 14:20

Drífa Snædal, forseti ASÍ Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í ályktun frá miðstjórnarfundi ASÍ frá því í dag er kallað eftir skýrri og fastmótaðri launastefnu hjá stjórnvöldum, eftir það launaskrið sem fylgdi í kjölfar þess að kjararáð var lagt niður. Er gagnsæi sagt koma í veg fyrir misskiptingu.

Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir að án úrbóta verði alltaf hjakkað í sama farinu:

„Það eru mjög fyrirsjáanleg viðbrögð við hinum árlegu tekjuupplýsingum að brjálast og fordæma. Við gengum lengra á fundi miðstjórnar ASÍ í dag og leggjum til leiðir til að auka gegnsæi og ekki síst að ná sátt um hver skipting tekna eigi að vera. Ef við komum ekki með tillögur til úrbóta erum við dæmd til að halda áfram í sama farinu:
1. tekjuupplýsingar einu sinni á ári,
2. fólki misbýður
3. fólk sem ver misskiptinguna bíður af sér storminn og heldur áfram.
Ég er allavega ekki til í þennan árvissa viðburð án þess að krefjast róttækra breytinga“

Engin umræða um sanngjörn laun

Í ályktuninni segir:

„Komið hefur í ljós að sú aðgerð að leggja niður kjararáð hefur valdið launaskriði hjá þeim hæstlaunuðu hjá ríkinu. Það var engin umræða um sanngjörn laun í tengslum við þá aðgerð. Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart. Á meðan við leggjum ekki skýrar línur í þessum málum skiptir engu máli hverjir ákveða launin. Einföld aðgerð eins og að breyta því hverjir ákveða laun þeirra launahæstu skilar engu réttlæti í sjálfu sér án skýrra reglna um launaákvarðanir. Tilhneigingin er alltaf sú að þeir sem hafa meira fá meira og þeir sem minna hafa fá minna.“

Tími til aðgerða

„Það er löngu tímabært að mótuð verði skýr og sanngjörn launastefnu hjá ríkinu og í stjórnum fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka. Festa þarf í lög að fyrirtæki geri grein fyrir launabili í ársreikningum og stjórnvöld þurfa að setja skýra launastefnu þar sem tilgreint er hvert launabilið megi vera á milli þeirra hæst launuðu og lægst launuðu.
Við þurfum að bregðast við þeirri móðgun og augljósu stéttaskiptingu sem birtist okkur í hvert sinn sem skattskrár eru gerðar opinberar. Það er ekki nóg að fordæma ofurlaun einu sinni á ári án þess að aðhafast nokkuð. Það er kominn tími til aðgerða.“

Miðstjórn ASÍ hvetur fulltrúa í stjórnum, trúnaðarmenn á vinnustöðum, stjórnmálafólk, starfsfólk og stjórnendur til að ræða launamun innan þeirra fyrirtækja og stofnana sem og innan samfélagsins alls. Móta þurfi stefnu sem byggi á niðurstöðu þess samtals:

„Það er afar brýnt að allir landsmenn greiði skatta og gjöld til samfélagsins óháð uppruna tekna, svo sem arðgreiðslur úr fyrirtækjum eða fjármagnstekjur. Upplýsingar um slíkt þurfa að vera aðgengilegar og gagnsæjar. Miðstjórn ASÍ hvetur Alþingi jafnframt til að samþykkja að birta álagningarskrár með rafrænum hætti, þar sem birtir eru allir álagðir skattar, þannig að aðgengi að þessum samfélagslega mikilvægu upplýsingum sé tryggt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Stefán horfir til baka – „Við vorum alltaf að slást hvert við annað“

Stefán horfir til baka – „Við vorum alltaf að slást hvert við annað“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Tvær flugur slegnar í einu höggi – leiðin út fyrir Guðlaug Þór?

Orðið á götunni: Tvær flugur slegnar í einu höggi – leiðin út fyrir Guðlaug Þór?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Ozzy er dáinn – en trendar hann?

Nína Richter skrifar: Ozzy er dáinn – en trendar hann?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Samfylkingin og Viðreisn á flugi í nýrri skoðanakönnun – málþófsminnihlutanum refsað

Orðið á götunni: Samfylkingin og Viðreisn á flugi í nýrri skoðanakönnun – málþófsminnihlutanum refsað
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr tjáir sig um besta vininn – „Vekur gjarnan aðdáun og áhuga hjá fólki“

Jón Gnarr tjáir sig um besta vininn – „Vekur gjarnan aðdáun og áhuga hjá fólki“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vilhjálmur vill vísa árásármanni Eyþórs úr landi – „Þessi framkoma gagnvart okkar friðsæla samfélagi er til skammar“

Vilhjálmur vill vísa árásármanni Eyþórs úr landi – „Þessi framkoma gagnvart okkar friðsæla samfélagi er til skammar“