Forseti Evrópuráðsþingsins, Liliane Maury Pasquier, hefur svarað klögunarbréfi Ásmundar Friðrikssonar um Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur. Birtir Þórhildur Sunna bréfið á Facebook, sem fékk afrit af svarinu einnig. Lesa má bæði bréfin neðst í fréttinni.
Í bréfinu kemur fram að Pasquier hafi aflað sér upplýsinga um málið frá Þórhildi Sunnu og telji ekkert í málinu benda til spillingar eða brots á reglum þingsins af hálfu Þórhildar sem réttlæti frekari aðgerðir, líkt og Ásmundur kallaði eftir.
Ásmundur sagði í útvarpsþætti að hann hefði ekki verið að kalla eftir neinum viðurlögum gagnvart Þórhildi Sunnu, sem hún segir vera lygi.
Í bréfi Ásmundar kemur skýrt fram að hann telji ástæðu til að Þórhildur Sunna verði svipt réttindum sínum í Evrópuráðsþinginu tímabundið og því ljóst að Ásmundur kallaði eftir viðurlögum vegna brots Þórhildar á siðareglum Alþingis.
Ósannindi Ásmundar
Þórhildur segir bréfið sönnun þess að Ásmundur hafi sagt ósatt:
„Jæja, þá er svarið frá forseta Evrópuráðsþingsins komið. Alveg eins og við var að búast að þá er einmitt ekki bannað að benda á spillingu í Evrópuráðsþinginu. Loks get ég líka sýnt fram á þau ósannindi sem Ásmundur hélt fram á Bylgjunni í gær um að hann hafi ekki farið fram á viðurlög gegn mér. Það er lygi. Hann vildi bæði að ég yrði svipt réttindum og að ég yrði jafnvel rekin úr Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins. Eins og meðfylgjandi bréf sýna."
Brot á tjáningarfrelsi
Þórhildur segist þvert á móti hafa upplýst Evrópuráðsþingið um úrskurð siðanefdnar Alþingis í sinn garð, fyrir að segja í Silfrinu að rökstuddur grunur væri á því að Ásmundur hefði dregið að sér almannafé, líkt og hann játaði í Kastljósþætti nokkru áður.
Þar að auki vil ég að það komi skýrt fram að ég hef verið ófeimin við að upplýsa kollega mína í Evrópuráðsþinginu um siðaregluúrskurðinn allt frá því að hann féll. Enda um brot á mínu tjàningarfrelsi að ræða. Hans auma afsökun fyrir þessu tilgangslausa klögubréfi sínu er því ekki sönn.Þó Ásmundur hafi ekki hugmynd um hvað ég er að gera í Evrópuráðsþinginu þýðir það ekki að hann megi bara fabúlera eitthvað út í loftið til þess að reyna að réttlæta þann augljósa hefndarhug sem liggur að baki þessu bréfi sem hann skrifaði."
Bréf Ásmundar
Svarbréfið til Ásmundar
Sjá nánar: Björn líkir Þórhildi Sunnu við Donald Trump