fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Vilhjálmur Birgisson hraunar yfir bæjarstjórn Grindavíkur: „Sturta lífskjarasamningum niður í holræsið“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 27. nóvember 2019 21:35

Vilhjálmur Birgisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur Birgisson , formaður Verkalýðsfélags Akraness skýtur föstum skotum á bæjarstjórn Grindavíkur í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í kvöld.

„Ég bara velti því fyrir mér hvaða siðrof og siðleysi hefur átt sér stað hjá bæjarstjórn Grindavíkur með því að voga sér að hækka laun sín frá 18% til 30% á einu bretti og um leið ógna lífskjarasamningum gróflega með þessu ótrúlega framferði sínu.“

„Að hugsa sér að lífskjarasamningurinn sem byggðist á því að segja prósentuhækkunum stríð á hendur og semja þess í stað með alfarið með krónutöluhækkunum og skapa þannig grundvöll til að nota svigrúmið mest handa tekjulægstu hópunum.“

Vilhjálmur fer hörðum orðum um bæjarstjórnina og segir hana gefa skít í samningana sem hann telur að hafa gengið vel til þessa.

„Lífskjarasamningurinn hefur nú þegar skilað þessu markmiði sem og því að verðbólgan hefur farið hratt lækkandi og nemur einungis 2,7% og þessu til viðbótar hefur lífskjarasamningurinn stutt við að stýrivextirnir hafa lækkað um 1,5% frá undirritun og hafa ekki verið lægri um margra ára skeið.“

„Nei, bæjarstjórn Grindavíkur sem saman stendur af fulltrúum Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar gefur skítt í íslenska verkalýðshreyfingu sem lagði gríðarlega mikið á sig til að ná þessum árangri með undirritun lífskjarasamningsins.“

„Nei, kjörnir fulltrúar Grindavíkur ætla ekkert að taka einhverjar krónutöluhækkanir heldur vilja þeir fá „leiðréttingu“ á launum sínum og það sem nemur frá 18 til 30% , en með þessu framferði eru fulltrúar þessara flokka nánast að sturta lífskjarasamningum niður í holræsið.“

Vilhjálmur talar bæði um siðrof og siðleysi í málinu, en hann bendir á að launalægstu starfsmenn bæjarfélagsins hafi nú verið samningslausir í ansi langan tíma.

„Láta lágtekjufólk skapa grundvöll með lífskjarasamningum til lækkunar verðbólgu og lækkun vaxta og njóta ávinnings af því eins og aðrir landsmenn en eru alls ekki tilbúnir til að taka sömu launabreytingum og þar var um samið!“

„Að hugsa sér að á sama tíma og þessar launahækkanir eru afgreiddar eins og ekkert sé eðlilegra eru tekjulægstu starfsmenn Grindavíkur og reyndar allra sveitarfélaga búnir að vera samningslausir í 250 daga. Hvað siðrof og siðleysi er þarna í gangi?“

Að lokum segir Vilhjálmur að stéttarfélögin verði að vígbúast vegna þessara tilburða hjá bæjarstjórninni.

„Eitt víst að þessi afgreiðsla fulltrúa Sjálfstæðismanna, framsóknarmanna og Samfylkingar í Grindavík mun ekki gera neitt annað en að stéttarfélögin verða að vígbúast og sækja sömu launabreytingar til handa starfsmönnum sveitarfélaganna vítt og breitt um landið og þessir aðilar afgreiddu til handa sér.“

„Hafi þessir aðilar skömm fyrir!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki