Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingarinnar, er nýr formaður velferðarnefndar Alþingis, samkvæmt tilkynningu. Samkvæmt samkomulagi Samfylkingarinnar og Pírata mun Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, taka við formennsku í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Helga Vala tók sæti á Alþingi fyrir Samfylkinguna í Reykjavíkurkjördæmi norður í alþingiskosningunum 2017.
Hún stundaði nám við MH 1988–1994. Leikkona frá Leiklistarskóla Íslands 1998. BA-próf í lögfræði HR 2009. Meistarapróf í lögfræði HR 2011. Hdl. 2011.
Leikkona og leikstjóri hjá Leikfélagi Akureyrar 1999. Leikkona hjá New Perspective Theatre Company 2000. Dagskrárgerðarkona á Bylgjunni 2000–2002. Upplýsingafulltrúi hjá Eddu, miðlun og útgáfu, 2001–2002. Dagskrárgerðarkona á Ríkisútvarpinu 2002–2005 og á Talstöðinni og NFS 2005–2006. Rekstrarstjóri á Kaffi Edinborg sumarið 2007. Blaðakona á Mannlífi 2008. Í stjórn Íslandspósts 2008–2010. Löglærður fulltrúi á Lögron, Lögfræðistofu Reykjavíkur og nágrennis, 2009–2011. Rak eigin lögmannsstofu, Valva lögmenn, 2011–2017. Stundakennari í stjórnskipunarrétti við HR 2012–2013. Varaformaður Þjóðleikhúsráðs 2012–2014. Í stjórn Dansmenntar ehf. frá 2013. Í höfundaréttarráði frá 2014. Athafnastjóri hjá Siðmennt, félagi siðrænna húmanista, frá 2016.
Formaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík 2008–2010. Í stjórn Félags íslenskra leikara 2014–2016.
Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður síðan 2017 (Samfylkingin).
Kjörbréfanefnd 2017–, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2017–2019 (formaður 2017–2019), umhverfis- og samgöngunefnd 2017–2019, velferðarnefnd 2019–.