fbpx
Föstudagur 08.ágúst 2025
Eyjan

Kísilver PCC þarf fimm milljarða til viðbótar – „I told you so“ segir fyrrverandi umhverfisráðherra

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 11. september 2019 12:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mikið hryggir þetta mig , og mikið er hundfúlt að segja I told you so, en við þessu varaði ég og gott fólk í litlum flokki á þingi sem hét Björt Framtíð. Kísilmálver á Bakka er, og var alveg frá byrjun vond hugmynd. Keyrð áfram af fólki til að koma eitthvað um þúsund atkvæðum í NA kjördæmi í kassann hjá umhverfisflokknum VG.“

Svo skrifar Björt Ólafsdóttir, fyrrverandi umhverfis- og auðlindaráðherra Bjartrar framtíðar, vegna frétta þess efnis að kísilver PCC á Bakka þurfi aukið fjármagn, allt að fimm milljarða, til að tryggja reksturinn, en kísilverið hefur mætt mikilli gagnrýni á liðnum árum.

Björt segist ekki vita til hvaða stjórnmálamanna megi höfða til varðandi kísilverið, þar sem hægri menn hafi ekki mikinn áhug á umhverfismálum, heldur horfi meira í peninginn. Þá hafi málið verið keyrt áfram af VG:

„Fljótt tiltekið held ég að stjórnvöld hafi látið almenning borga um 40-70 milljarða í meðgjöf með þessu öllu. Það er einn Landspítali svona til samanburðar,“

segir Björt og nefnir að kísilverið sé ein stór hýt sem muni alltaf vilja meira og meira:

„Svo var líka vitað að PCC vill stækka, og það er næsta víst að þeir munu leggja áherslu á það svo að starfsemin „geti frekar orðið arðbær“ þá þarf almenningur í gegn um Landsvirkjun að skuldsetja sig enn meira vegna virkjana sem til þarf. Og fyrir hvað? Sótsvart mengandi iðnaðarver, sem rekur sig ekki. Og almenningur er aftur látin borga því að stærstu lífeyrissjóðum landsins fannst þetta frábært fjárfestingatækifæri. Lífeyrinn sem þú vinnur þér inn um hver mánaðarmót átti að ávaxtast þarna. En það gerir hann nefnilega ekki miðað við þessar áætlanir. Þá eruð þið beðin um að borga meira inn, leggja meira að veði. Vill fólk það?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Höfundur hrunsins toppar sjálfan sig – kallar Kristrúnu og Þorgerði Katrínu „fermingarstúlkur“

Orðið á götunni: Höfundur hrunsins toppar sjálfan sig – kallar Kristrúnu og Þorgerði Katrínu „fermingarstúlkur“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Æskuást

Óttar Guðmundsson skrifar: Æskuást
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Greinir heimsókn Ursulu von der Leyen og spyr hvað stjórnarandstaðan óttist

Greinir heimsókn Ursulu von der Leyen og spyr hvað stjórnarandstaðan óttist
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Orðið á götunni: Lánlítil stjórnarandstaða – ætlar aftur í slag gegn þjóðinni

Orðið á götunni: Lánlítil stjórnarandstaða – ætlar aftur í slag gegn þjóðinni
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Brynhildur Guðmundsdóttir tekur við sem forstjóri Daga hf.

Brynhildur Guðmundsdóttir tekur við sem forstjóri Daga hf.