fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Leigir eitt herbergi á 100 þúsund: „Hérna í frystihúsinu heyri ég bara pólsku“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Miðvikudaginn 23. janúar 2019 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Systir mín og mágur unnu við fiskverkun á Íslandi lengi vel á árunum áður. Fyrir átta árum fékk ég símtal frá þeim og þau spurðu mig hvort ég vildi eignast betra líf? Flytjast hingað og vinna í fisk. Ég sló til og kom, mig vantaði pening.“

Svona hefst frásögn Elżbieta Soj, fiskverkunarkonu. Hún segir sögu sína á Facebook síðu átaksins „Fólkið í Eflingu“. Þar má einnig finna fjölmargar aðrar sögur meðlima stéttafélagsins, fólk sem vinnur margvísleg störf í íslensku samfélagi en oft á tíðum fyrir lág laun.

Það er engin ástæða til að breyta þessari frásögn og ætti enginn að láta hana fram hjá sér fara. Frásögn Elżbieta er svohljóðandi:

„Ég vann þá sem afgreiðslukona í búð í heimabæ mínum sem heitir Sosnowiec sem er verksmiðjubær í nágrenni við Katowice í Póllandi. Sosnowiec er borg með helmingi fleiri íbúum en Reykjavík og þar eru allskonar verksmiðjur, bílaverksmiðjur og gluggaverksmiðjur. Í Póllandi er lítið um innflytjendur og erlent vinnuafl nema þá kannski frá Úkraínu sem starfar þá gjarnan í verksmiðjunum.

Systir mín og mágur fluttu aftur til Póllands og börnin mín þrjú búa þar líka. Ég ein er hérna ennþá að verka fisk og leigi eitt herbergi sem ég greiði 100 þúsund krónur fyrir. Dóttir mín var að vísu hjá mér síðasta sumar og vann með mér hérna í frystihúsinu sem sumarstarfsmaður. Hún er ennþá í námi og hún er að klára síðasta árið í kennaraháskóla. Eftir nám ætlar hún að stofna leikskóla í Póllandi þar sem börnin fá að vera úti undir berum himni í öllum veðrum einsog tíðkast á Íslandi, hún er hrifin af þeirri hefð hérna en í Póllandi eru leikskólabörnin að mestu leyti haldið innandyra.

Börnin mín þrjú búa í Póllandi og ég fylgist með ástandinu og mér sýnist efnahagsástandið vera að batna í Póllandi. Allavega hafa strákarnir mínir það gott, þeir eru báðir fjölskyldumenn, með íbúð og vinnu, en þeir vinna líka mikið. Fólk þarf að vinna mikið alls staðar, ekki bara í Póllandi, það er sama sagan í Rússlandi og hérna á Íslandi fólk þarf að vinna mikið til þess að lifa af. Ég ætla að vinna þangað til að ég verð 65 ára eða jafnvel lengur ef heilsan leyfir.

Hérna í frystihúsinu heyri ég bara pólsku en mig langar í skóla til þess að læra meiri ensku. Allir íslendingar tala ensku. Þegar ég fer til læknis eða í banka talar fólk við mig á ensku. Ég hef ekki komist upp á lag með íslenskuna, ég get sagt: Takk fyrir! Meira! Allt í lagi! Góðan daginn!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“