fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
Eyjan

Ríkisstarfsmenn fá afturvirkar launahækkanir

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 14. febrúar 2018 12:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Laun félagsmanna aðildarfélaga BSRB sem starfa hjá ríkinu verða hækkuð um 1,3 prósent að meðaltali til að bæta þeim upp launaskrið á almennum vinnumarkaði. Hækkunin er afturvirk frá 1. janúar 2017 og ætti að koma til framkvæmdar um næstu mánaðarmót hjá félagsmönnum flestra aðildarfélaga. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Útfærslan á hækkuninni, hvernig hún er greidd, er í höndum aðildarfélaganna.

BSRB undirritaði samkomulag um launaþróunartryggingu opinberra starfsmanna sem eru félagar í aðildarfélögum bandalagsins í desember síðastliðnum. Stjórn bandalagsins ákvað svo á fundi sínum 2. febrúar að láta hverju og einu félagi eftir að semja um útfærslu við ríkið og hafa þau nú velflest gengið frá slíku samkomulagi.

Markmiðið með launaþróunartryggingunni er að tryggja að opinberir starfsmenn sitji ekki eftir á meðan launaskrið hækkar meðallaunin á almennum vinnumarkaði. Í rammasamkomulagi aðila vinnumarkaðarins frá árinu 2015 er kveðið á um að þeim sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum verði bætt það launaskrið sem verður á almenna vinnumarkaðinum umfram það sem kann að verða á opinbera markaðinum. Aðild að samkomulaginu eiga íslenska ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Alþýðusamband Íslands, BSRB og Samtök atvinnulífsins.

Stór áfangi fyrir félagsmenn

„Þetta er auðvitað stór áfangi fyrir okkar félagsmenn og jákvætt að þetta sé nú í höfn,“ segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB. „Ákvæðinu um launaþróunartryggingu er ætlað að tryggja okkar félagsmönnum að laun þeirra muni þróast á sama hátt og laun á almennum vinnumarkaði. Nú hækka launin hjá hluta af okkar fólki eftir fyrstu mælingu en svo verða gerðar tvær mælingar til viðbótar vegna áranna 2017 og 2018 sem geta haft áhrif á launin.“

Við útreikning á launaskriði er litið til þróunar á almenna markaðinum annars vegar og hjá félögum í BSRB hins vegar á tímabilinu frá nóvember 2013 til nóvember 2016. Niðurstöður útreikninga fyrir þetta tímabil sýna að hækka þarf laun félaga í aðildarfélögum BSRB sem starfa hjá ríkinu um að meðaltali 1,3 prósent. Hækkunin er afturvirk og gildir frá 1. janúar 2017. Laun félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands sem starfa hjá ríkinu munu hækka um að meðaltali 1,6 prósent af sömu ástæðu.

Mælt aftur fyrir 2017 og 2018

Laun félagsmanna BSRB sem starfa hjá sveitarfélögum taka ekki breytingum að þessu sinni. Ástæðan er sú að laun starfsmanna sveitarfélaga hafa hækkað meira en laun á almennum vinnumarkaði á árunum 2013 til 2016. Launaþróunin verður mæld áfram og leiðrétt vegna áranna 2017 og 2018, ef tilefni reynist til, þegar þær tölur liggja fyrir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur