fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Fjöldauppsagnir hjá WOW í dag – 111 sagt upp og flugvélum fækkað

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 13. desember 2018 10:30

Skúli Mogensen, fyrrverandi forstjóri WOW.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

WOW air hefur sagt upp 111 fastráðnum starfsmönnum í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þá verða samningar við verktaka og tímabundna starfsmenn ekki endurnýjaðir. Eftir breytingarnar munu um 1000 manns starfa hjá félaginu, en 1500 manns vinna þar samkvæmt heimasíðunni.

„Þetta er erfiðasti dagurinn í sögu WOW air. Við erum með frábæran hóp af fólki sem hefur lagt hart að sér að gera WOW air að veruleika og það er því sorglegt að neyðast til að fara í þennan niðurskurð. Ég vildi óska þess að það væri til önnur leið en staðreyndin er sú að við verðum að snúa við rekstrinum og koma honum aftur í gott horf áður en við getum hafið uppbygginguna að nýju,“

segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.

Fækkað verður flugvélum úr 20 í 11 og verða eingöngu flugvélar að gerðinni Airbus A321 og A320 í flota félagsins.

Indigo Partners er í kaupferli á WOW, en íslenska félagið hefur verið í fjárhagskröggum allt þetta ár.

Starfsfólk WOW hefur verið á nálum síðan félagið fór í hlutafjárútboð, sem ekki heppnaðist nægilega vel. Þá gengu kaup Icelandair Group ekki í gegn, en Skúli Mogensen, eigandi og forstjóri WOW, sagði í lok nóvember að hann útilokaði ekki uppsagnir hjá félaginu.

Skömmu síðar var tilkynnt um aðkomu Indigo Partners, sem Skúli sagðist himinlifandi með.

Formaður Flugfreyjufélagsins, Berglind Hafsteinsdóttir, vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu, en sagðist vera að funda fyrir hádegið vegna málsins.

WOW auglýsir nú sérstakan jólaafslátt til allra áfangastaða, um er að ræða 50% afslátt sem gildir á ferðatímabilinu 12. desember til 31. mars 2019.

Áður en Eyjan birti fyrst miðla fréttir af uppsögnunum í morgun, höfðu bréf í Icelandair þegar byrjað að hækka. Hafa þau hækkað um ríflega 7,6 prósent í viðskiptum dagsins, sem nema um 55 milljónum þegar þetta er ritað um klukkan 11.

 

Tilkynning WOW

Rekstrarbreytingar hjá WOW air

Síðastliðið ár hefur reynst WOW air mjög erfitt í rekstri og unnið hefur verið markvisst að því undanfarið að snúa rekstrinum við til hins betra og fjármagna félagið. Eins og fram hefur komið er Indigo Partners að vinna með WOW air um að tryggja langtíma fjármögnun félagsins. Liður í þeirri vinnu er að einfalda rekstur WOW air og ná arðsemi á ný en félagið skilaði hagnaði árin 2015 og 2016.

Stór hluti af þessari endurskipulagningu WOW air felst í því að fækka flugvélum úr tuttugu í ellefu og verða eingöngu flugvélar að gerðinni Airbus A321 og A320 í flota félagsins. Félagið er í samningaviðræðum um skil á nokkrum flugvélum til leigusala þar með talið öllum Airbus A330 breiðþotum. Verið er að ganga frá samningi þess efnis að selja fjórar Airbus A321 flugvélar sem verða afhentar í janúar 2019 og mun bæta lausafé félagsins um 10 milljónir Bandaríkjadala.

Það verða engar breytingar á flugáætlun í desember og byrjun janúar. Frá janúar 2019 mun félagið fljúga samkvæmt nýrri flugáætlun. Síðasta flug frá Nýju Delí er 20. janúar og frá Los Angeles 14. janúar. WOW air mun hafa samband við þá farþega sem verða fyrir áhrifum breytinga á leiðarkerfi félagsins.

Í ljósi þessara breytinga á starfsemi félagsins er því miður óumflýjanlegt að fækka í starfsmannahópi WOW air. Í dag var 111 fastráðnum starfsmönnum sagt upp störfum og ná uppsagnir starfsmanna þvert á fyrirtækið. Að sama skapi munu samningar við verktaka og tímabundna starfsmenn ekki verða endurnýjaðir að svo stöddu. Vonir standa til að stór hluti þeirra sem fengu uppsögn í dag fái tækifæri hjá félaginu að nýju.

„Þetta er erfiðasti dagurinn í sögu WOW air. Við erum með frábæran hóp af fólki sem hefur lagt hart að sér að gera WOW air að veruleika og það er því sorglegt að neyðast til að fara í þennan niðurskurð. Ég vildi óska þess að það væri til önnur leið en staðreyndin er sú að við verðum að snúa við rekstrinum og koma honum aftur í gott horf áður en við getum hafið uppbygginguna að nýju“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.

Eftir þessar rekstrarbreytingar munu áfram starfa hátt í þúsund manns hjá félaginu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus