fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Unnur Brá verður fulltrúi ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 16. október 2018 12:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Unni Brá Konráðsdóttur, aðstoðarmanni ríkisstjórnarinnar, verður falið að tryggja samhæfingu loftslagsmála fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Þetta var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun að tillögu forsætisráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Þar segir að Unnur Brá muni annast samhæfingu loftslagsmála fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, tryggja yfirsýn yfir verkefnið í heild sinni og annast eftirfylgni með framgangi loftslagsmála í heild, í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarinnar. Þá muni Unnur Brá áfram vera verkefnisstjóri í vinnu við endurskoðun stjórnarskrárinnar og sinna ýmsum öðrum þverfaglegum verkefnum sem aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar.

Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, sem kynnt var 10. september sl. Í aðgerðaáætluninni er gerð grein fyrir fyrirhuguðum verkefnum í loftslagsmálum og hvernig unnt sé að hrinda metnaðarfullum áherslum um loftslagsmál í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar í framkvæmd.

„Þar sem um er að ræða forgangsmál ríkisstjórnarinnar sem varðar öll ráðuneyti í Stjórnarráði Íslands var samþykkt að Unnur Brá Konráðsdóttir annist samhæfingu loftslagsmála fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfis- og auðlindráðuneytinu, er formaður verkefnastjórnar aðgerðaráætlunar í loftslagsmálum sem skipuð var í mars 2018. Þá er loftslagsráð sem skipað var í maí 2018 ætlað að vera stjórnvöldum til aðhalds með markvissri ráðgjöf um stefnumarkandi ákvarðanir sem tengjast loftslagsmálum á Íslandi. Formaður Loftslagsráðs er Halldór Þorgeirsson,“ segir í tilkynningu forsætisráðuneytisins.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki