fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Ríkisstjórnin skipi þverpólitíska nefnd sem vinni að stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 23. janúar 2018 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkisstjórnin ákvað í dag, að tillögu Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra, að skipa þverpólítíska nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu til að leiða vinnu um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Með nefndinni mun enn fremur starfa samráðshópur helstu hagsmunaaðila og almannasamtaka, s.s. náttúruverndarsamtaka, útvistarsamtaka og samtaka hagsmunaaðila s.s. í ferðaþjónustu, landbúnaði og orkumálum.

Leitað verður tilnefninga í nefndina frá öllum flokkum á Alþingi, auk tveggja fulltrúa sveitarfélaga og fulltrúa frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu.

Nefndinni er m.a. ætlað að skilgreina mörk þjóðgarðsins og setja fram áherslur um skiptingu landssvæða innan hans í verndarflokka. Einnig er henni ætlað að fjalla um hugsanlegar aðkomuleiðir og þjónustumiðstöðvar, svæðisskiptingu og rekstrarsvæði og greina tækifæri með stofnun þjóðgarðs á byggðaþróun og atvinnulíf. Jafnframt er henni ætlað að gera tillögur að helstu áherslum í stjórnunar- og verndaráætlunum og atvinnustefnu fyrir þjóðgarðinn.

Til grundvallar starfi nefndarinnar liggur skýrsla nefndar umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og hagaðila um forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands sem kom út í nóvember 2017. Í skýrslunni er m.a. að finna heildstætt yfirlit um miðhálendið, náttúru og menningarminjar þess, yfirlit yfir helstu stefnumörkun sem fyrir liggur um miðahálendið varðandi verndun, auðlindir, nýtingu, innviði og helstu hagsmuni innan miðhálendisins.

Gert er ráð fyrir að nefndin skili ráðherra tillögu sinni í formi skýrslu og tillögu að lagafrumvarpi um þjóðgarðinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki