Búið er að blása af árshátíð Stjórnarráðsins sem vera átti þann 6. október, eftir afskipti Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra og Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra. Fréttablaðið greinir frá og segist hafa heimildir fyrir óánægju starfsmanna vegna afskiptasemi ráðherranna.
Það sem fer fyrir brjóstið á Katrínu og Lilju er dagsetningin, en þann 6. oktíber verða 10 ár liðin frá „Guð blessi Ísland“ ræðu Geirs H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, sem markar upphaf hrunsins hjá flestum.
Ráðuneytin skiptast á um að skipuleggja árshátíðir Stjórnarráðsins og nú var komið að starfsmannafélagi mennta- og menningarmálaráðuneytisins að spreyta sig.
Árshátíðinni hefur því verið frestað fram á næsta vor eftir að Lilja lýsti áhyggjum sínum við Katrínu og í kjölfarið andstöðu sinni við skipuleggjendur og lögðu þær blátt bann við árshátíðinni.
Enginn hlutaðeigandi hefur viljað tjá sig um málið, samkvæmt Fréttablaðinu.