fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Nýjar íbúðir í Reykjavík kosta 51 milljón að meðaltali

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 21. september 2018 08:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á fyrstu sjö mánuðum þessa árs voru 14% allra íbúðaviðskipta á almennum markaði hér á landi vegna nýbygginga en árið 2010 var hlutfallið 3%. Þegar síðasta uppsveifla náði hámarki árið 2007 var hlutfallið 18%. Í Mosfellsbæ voru um 56% allra íbúðaviðskipta vegna nýbygginga á fyrri helmingi ársins og í Garðabæ var þetta hlutfall 45%. Í Reykjavík voru 6% allra íbúðaviðskipta vegna nýbygginga. Þetta kemur fram í nýrri greiningu hagdeildar Íbúðalánasjóðs á markaðnum með nýjar íbúðir.

Nýbyggðar íbúðir eru minni en aðrar íbúðir

Nýbyggðar íbúðir eru að jafnaði minni, og með færri herbergjum, en aðrar íbúðir á markaðnum. Einna minnstar eru nýju íbúðirnar á Akureyri, en þær nýbyggðu íbúðir sem seldust þar á fyrstu sjö mánuðum ársins voru um 82 fermetrar að stærð eða 38 fermetrum minni en aðrar seldar íbúðir í bænum. Í Reykjavík voru nýjar íbúðir að meðaltali 89 fermetrar á sama tímabili sem er 20 fermetrum minna en aðrar íbúðir.

Nýjar íbúðir í Reykjavík 32% dýrari á hvern fermetra

Söluverð nýrra íbúða í Reykjavík á fyrstu sjö mánuðum ársins var að meðaltali 51 milljón króna en verð annarra íbúða var að meðaltali 46 milljónir. Á öðrum ársfjórðungi var fermetraverð í kaupsamningum vegna nýbygginga í Reykjavík að meðaltali um 586 þúsund krónur en í öðrum íbúðum í borginni var fermetraverðið að meðaltali um 445 þúsund krónur. Nýbyggingar í Reykjavík voru því að meðaltali um 32% dýrari á hvern fermetra en aðrar íbúðir.

Sérstakur skortur á ódýrum íbúðum

Að mati hagdeildar Íbúðalánasjóðs bendir margt til þess að sérstakur skortur sé á minni og hagkvæmum íbúðum á verði sem almenningur ræður við. Minni íbúðir í nýbyggingum eru skemur í sölu og líklegri til að seljast á eða yfir ásettu verði en stærri íbúðir í nýbyggingum. Þrátt fyrir þessa eftirspurn eftir litlum íbúðum er ljóst að fáar af þeim nýbyggingum sem komið hafa á markaðinn að undanförnu henta þeim sem hafa lítið eigið fé til íbúðakaupa. Aðeins 5% nýbygginga á landsvísu hafa verið auglýst á undir 30 milljónum króna það sem af er ári og aðeins 2% þeirra hafa verið auglýst á undir 25 milljónum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Enn einn Snapchat-perrinn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki