fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Ungir Framsóknarmenn styðja ljósmæður

Trausti Salvar Kristjánsson
Mánudaginn 2. apríl 2018 13:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna hefur sent frá sér ályktun til stuðnings kjarabaráttu ljósmæðra. Í ályktuninni segir meðal annars að allir landsmenn njóti góðs af þeirri grunnþjónustu sem að ljósmæður
veita á einn eða annan hátt einhverntímann á lífsleiðinni og að starf þeirra skuli metið að verðleikum.

Þá kemur einnig fram að það sé stefna sambandsins að nemar skuli ávallt fá greitt þegar starfsnám er til jafns við hefðbundna vinnu og
ótækt að hjúkrunarfræðingar þurfi að taka á sig launalækkun við að bæta við sig ljósmæðranámi.

Sandra Rán Ásgrímsdóttir, formaður SUF, segir að það hafi verið
einhuga samþykki innan stjórnar SUF að sýna ljósmæðrum stuðning í
sinni kjarabaráttu:

„Það er okkar stefna að þær stéttir og þau störf í
samfélaginu sem að koma að umönnun og uppeldi séu metin til samræmis
við mikilvægi þeirra, ljósmæður eru ein af þessum stéttum,“

sagði Sandra Rán.

Ályktunina í heild sinni má lesa hér að neðan:

Stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna styður heilshugar við
kjarabaráttu ljósmæðra. Ljósmæður eru elsta menntaða kvennastétt
landsins og sinna grunnþjónustu sem allir landsmenn njóta góðs af á
einn eða annan hátt einhverntímann á ævinni.

Ljósmæðranám er 6 ára háskólanám á Íslandi. Fyrst ljúka ljósmæður
hjúkrunarfræðinámi áður en þær fara í tveggja ára ljósmæðranám. Að því
loknu lækka þær í launum og í starfsnáminu eru þær launalausar.

Stefna Sambands ungra Framsóknarmanna er að nemar skuli ávalt fá
greiðslur í starfsnámi þar sem þeir þurfa að vinna hefðbundna vinnu og
að nemar séu tryggðir í störfum sínum. Starf ljósmæðra þarf að meta að
verðleikum og nauðsynlegt er að tryggja nýliðun í þessari mikilvægu
stétt.

Stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna telur mikilvægt að hugað sé að
þeim stéttum sem koma að umönnun og uppeldi í samfélaginu og að störf
þeirra og ábyrgð séu metin til samræmis við mikilvægi þeirra. Því
hvetur stjórnin þess að nám og ábyrgð ljósmæðra verði metið að
verðleikum við samningagerð við stéttina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki