fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Verð á bílaleigubílum lækkar við Leifsstöð-Samt hæsta verð í Evrópu

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 21. febrúar 2018 14:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leifsstöð                                                                 Mynd-DV

Samtals hefur verð á bílaleigubílum við Leifsstöð lækkað um 38% frá því 2015, um 24% í evrum talið og 17% í dollurum talið, sökum styrkingar krónu síðastliðin þrjú ár. Þá er miðað við gengið í febrúar 2015 og febrúar 2018. Þetta kemur fram á Túristi.is.

Forsendurnar eru að leigður sé minnsti bíllinn í tvær vikur hjá einhverjum þeirra bílaleiga sem bjóða þjónustu sína við Leifsstöð, en það kostaði að lágmarki 123 þúsund sumarið 2015 en kostar nú  76 þúsund. Munurinn er því 38 prósent.

Ísland er þó ennþá með hæsta meðalleiguverðið miðað við 12 aðrar flugstöðvar í Evrópu. Stokkhólmur er næstdýrast og þá Osló. Alicante er ódýrast, samkvæmt Túrista.is.

„Í verðkönnunum Túrista er fundið við leiguverð á ódýrasta bílaleigubílnum við hverja flugstöð fyrir sig og miðað er við tveggja vikna leigutíma í júní, júlí og ágúst og reiknað út meðalverð á dag. Notast er við leitarvél Rentalcars.com sem er ein umsvifamesta bókunarsíða heims á þessu sviði og býður því oft lægra verð en almennt gerist. Þannig kostar ódýrasti bílaleigubíllinn á Keflavíkurflugvelli seinni hlutann í júlí rúmlega 86 þúsund skv. Rentalcars en ef bókað er beint hjá Hertz er verðið að lágmarki 139.200 og 154.599 hjá Avis. Þess má geta að verðskrár þessara tveggja bílaleigufyrirtækja hafa líka lækkað verulega frá því í febrúar 2015. Þá kostaði ódýrasti bíllinn hjá Hertz 198.800 kr. og 214.300 hjá Avis. Í öllum tilvikum er ótakmarkaður akstur og kaskótrygging innifalin í verðinu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki