fbpx
Mánudagur 10.nóvember 2025
Eyjan

Landbúnaðarháskólinn skuldlaus við ríkissjóð – Fékk 85% skulda afskrifað

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 21. febrúar 2018 13:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landbúnaðarháskólinn       Mynd/Ríkisendurskoðun

Samkvæmt Ríkisendurskoðun er Landbúnaðarháskóli Íslands nú skuldlaus við ríkissjóð. Skólinn hefur lengi átt í fjárhagserfiðleikum og voru 85% af skuldum skólans afskrifaðar um áramótin 2016/2017. Þá þurfti einnig að segja upp starfsfólki.

Ríkisendurskoðun kom með tvær ábendingar til skólans og menntamálaráðuneytisins árið 2015 um fjármálastjórn og rekstrarstöðu skólans. Sú fyrri var að tryggja þyrfti  að reksturinn yrði ávallt innan fjárheimilda og sú seinni að finna þyrfti varanlega lausn á skuld skólans við ríkissjóð. Þær ábendingar voru ekki ítrekaðar nú og skólinn því laus allra mála.

 

 

 

Frétt Ríkisendurskoðunar:

Ríkisendurskoðun ítrekar ekki tvær ábendingar til mennta- og menningarmálaráðuneytis og Landbúnaðarháskóla Íslands frá árinu 2015 um fjármálastjórn og rekstrarstöðu háskólans. Þetta kemur fram í nýrri eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar Fjármálastjórn Landbúnaðarháskóla Íslands.

Fyrri ábendingin laut að því að tryggja þyrfti að rekstur Landbúnaðarháskólans yrði ávallt innan fjárheimilda. Seinni ábendingin laut að því að finna þyrfti varanlega lausn á skuld skólans við ríkissjóð sem í árslok 2013 nam 715 m.kr. Frá árinu 2015 hefur háskólinn skilað rekstrarafgangi og líkur eru á að umtalsverður afgangur verði á árinu 2017. Þessi rekstrarafgangur hefur verið nýttur til að greiða niður skuld skólans við ríkissjóð. Að auki var skuld skólans lækkuð um 340,9 m.kr. í lokafjárlögum 2015. Allt bendir því til að skólinn verði skuldlaus gagnvart ríkissjóð í árslok 2017. Markmiði um að rekstur Landbúnaðarháskólans sé innan fjárheimilda og að leyst sé úr skuldastöðu hans við ríkissjóð hefur því verið náð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Reynir Traustason: Ég ætla ekki að berja þig, Sveinn Andri, ég kæri þig til siðanefndar lögmanna

Reynir Traustason: Ég ætla ekki að berja þig, Sveinn Andri, ég kæri þig til siðanefndar lögmanna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nýjar ógnir og nýtt RÚV

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nýjar ógnir og nýtt RÚV
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Mogginn vill leiðrétta mannréttindabrot en bara „hóflega“

Svarthöfði skrifar: Mogginn vill leiðrétta mannréttindabrot en bara „hóflega“