fbpx
Miðvikudagur 12.nóvember 2025
Eyjan

Fjármálastöðuleikaráð: Farið að hægja á verðhækkunum á fasteignamarkaði

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 30. janúar 2018 14:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrsti fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2018 var haldinn fimmtudaginn 18. janúar í fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Þar kom fram að á heildina litið er áhætta í fjármálakerfinu fremur lítil. Spenna ríkir á fasteignamarkaði, fasteignaverð er í sögulegu hámarki og farið að víkja frá undirliggjandi efnahagsþáttum. Þetta kemur fram á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins.

Vísbendingar eru þó um að farið sé að hægja á verðhækkunum á fasteignamarkaði. Vöxtur í ferðaþjónustu er enn umtalsverður en hefur hægt á sér. Útlánavöxtur er farinn að að sækja í sig veðrið, sérstaklega hjá fyrirtækjum. Þótt dregið hafi úr afgangi af utanríkisviðskiptum sl. misseri, eru enn horfur á að ytri jöfnuður þjóðarbúsins styðji við stöðugleika á næstu árum. Staða heimila og fyrirtækja er enn sterk, þar vegast á annars vegar aukin skuldsetning og kröftug einkaneysla og hins vegar hátt eignaverð. Viðnámsþróttur viðskiptabankanna er einnig mikill, þrátt fyrir töluverðar arðgreiðslur sl. misseri. Miklar arðgreiðslur eru til þess fallnar að draga úr viðnámsþrótti bankanna. Þá verður einnig að gæta að lausafjárstöðu bankanna við arðgreiðslur.

Á næstu misserum verða margvíslegir fjármálainnviðir endurnýjaðir. Innleiðingu nýrra fjármálainnviða fylgir álag og smitáhrif ef áhætta raungerist. Nauðsynlegt er fyrir eftirlitsstofnanir að fylgjast vel með innleiðingunni og vera í viðbragðsstöðu.

Í tengslum við umfjöllun um greiðslustofnanir og aðra aðila er sinna greiðsluþjónustu var rætt um yfirstandandi endurskoðun á eftirliti með tilteknum áhættum tengdum greiðsluþjónustuveitendum þ.e. endurkröfu- og samþjöppunaráhættu.

Næsti fundur fjármálastöðugleikaráðs verður 14. mars 2018.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Svona gerir maður ekki

Orðið á götunni: Svona gerir maður ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum