fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Reykjavíkurborg kallar eftir aðstoð almennings – Hugmyndaleit um hagkvæmt húsnæði

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 24. janúar 2018 09:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd/Getty

Reykjavíkurborg efnir nú til hugmyndaleitar um hagkvæmt húsnæði og er sérstaklega horft til hugmynda sem hjálpa ungu fólki og fyrstu kaupendum að komast í húsnæði.  Einnig er leitað almennt eftir verkefnum sem hjálpa borginni að ná markmiðum sínum í aðalskipulagi sem eru að allt að 25% íbúða verði miðaðar við þarfir þeirra sem ekki vilja leggja eða ekki geta lagt mikið fé í eigið húsnæði.

Öllum er velkomið að senda inn hugmyndir og skulu þær berast í síðasta lagi 8. febrúar 2018. Nánari upplýsingar um skil hugmynda er að finna á vefsíðunni Hagkvæmt húsnæði – hugmyndaleit.

·       Hugmyndir geta snúist um hugmyndafræði og/eða byggingaraðferð.

·       Lóðir í Gufunesi, Ártúnshöfða, Skerjafirði, hjá Veðurstofu Íslands og Sjómannaskólanum eru mögulegar fyrir útfærslu hugmynda.

·       Fjöldi aðila hefur nú þegar kynnt hugmyndir um áhugaverðar húsnæðislausnir.

·       Skilafrestur hugmynda er til 8. febrúar.

Hugmyndafræði og byggingaraðferðir

Hugmyndir geta bæði gengið út á nýja hugmyndafræði, nýja byggingaraðferð eða blöndu beggja aðferða. Með hugmyndafræði er átt við leiðir sem geta auðveldað fólki að komast í gott húsnæði eins og til dæmis nýsköpun í leigufyrirkomulagi, samnýtingu eða fjármögnun. Með nýjum byggingaraðferðum er átt við hugmyndir sem geta lækkað byggingarkostnað húsnæðis og þar með kostnað íbúa.

Hrefna Þórsdóttir og Óli Örn Eiríksson hjá skrifstofu eigna og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar  segja að húsnæðismálin séu ein stærsta áskorun samtímans. Mikill fjöldi ungs fólks sem vill komast á  húsnæðismarkað telur það umtalsvert erfiðara en hjá fyrri kynslóðum og ljóst sé að það húsnæði sem er verið að þróa og byggja í dag hentar ekki öllum. Það sé þörf á nýjum skapandi lausnum til þess að fjölga valkostum fyrir fólk í húsnæðisleit.

Áhugaverðar lausnir hafa þegar verið kynntar

Fjöldi aðila hefur verið í sambandi við Reykjavíkurborg og kynnt hugmyndir um áhugaverðar húsnæðislausnir, að sögn Hrefnu og Óla Arnar. Á meðal hugmynda sem hafa verið til umræðu má nefna fjölbreyttara efnisval, nýjar fjármögnunarleiðir, smáhýsi, forsmíðuð einingahús og deilihúsnæði, en það eru t.d. íbúðarherbergi með sameiginlega aðstöðu.

Reykjavíkurborg hefur hug á að leggja til verkefnisins lóðir á völdum svæðum í borginni. Þar á meðal geta lóðir í Gufunesi, Ártúnshöfða og Skerjafirði staðið til boða fyrir verkefnið ásamt lóðum hjá Veðurstofu Íslands og Sjómannaskólanum. Skipulagsvinna fyrir þessi svæði er á byrjunarstigi. Með umsókn sinni er æskilegt að umsækjendur forgangsraði á hvaða svæði þeir vilja þróa sínar lausnir og tilgreini líklegan fjölda íbúðareininga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki