fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Áhersla lögð á börn og ungmenni við úthlutun úr þróunarsjóði innflytjendamála

Trausti Salvar Kristjánsson
Mánudaginn 15. janúar 2018 18:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá kynningarfundi um þróunarsjóð innflytjendamála Mynd/Velferðarráðuneytið

Um fjörutíu manns sóttu opinn fund innflytjendaráðs fyrir helgi þar sem fjallað var um ferli umsókna eftir styrkjum úr þróunarsjóði innflytjendamála, reglur sjóðsins og áherslur stjórnvalda við val á verkefnum að þessu sinni. Frestur til að sækja um styrki úr sjóðnum rennur út 31. janúar.

Úthlutað er árlega úr þróunarsjóði innflytjendamála og fyrir hverja úthlutun draga stjórnvöld fram ákveðna þætti sem þau vilja leggja áherslu á við val á verkefnum sem hljóta styrki það árið. Að loknu opnunarávarpi Tatjönu Latinovic, formanns inflytjendaráðs flutti Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, ávarp þar sem hann kynnti áherslur stjórnvalda vegna styrkveitinga árið 2018.

 

Í ávarpi sínu ræddi hann sérstaklega um stöðu barna og  barnafjölskyldna og mikilvægi þess að hlúa vel að þeim samhliða því að byggja upp sterkar stoðir sem stuðla að því að allar kynslóðir innflytjenda geti verið virkir þátttakendur í samfélaginu.

Við ákvörðun um styrkveitingar að þessu sinni verður lögð áhersla á eftirfarandi:

  • Rannsóknar- og þróunarverkefni sem tengjast börnum og ungmennum af erlendum uppruna.
  • Rannsóknar- og þróunarverkefni sem falla vel að áherslum þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2016–2019 sem samþykkt var á Alþingi 20. september 2016.
  • Rannsóknar- og þróunarverkefni sem stuðla að virkri þátttöku innflytjenda í samfélaginu og auka sýnileika þeirra.

Samtök um móðurmál kynntu á fundinum verkefni þeirra sem hlaut styrk úr þróunarsjóðnum árið 2016 og Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, starfsmaður innflytjendaráðs fjallaði um reglur þróunarsjóðsins og umsóknarferlið. Glærur frá kynningu Hilmu eru aðgengilegar hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki