fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
Eyjan

Ungir Píratar og Vantrú bjóða á fyllerí á Föstudeginum langa

Ari Brynjólfsson
Sunnudaginn 9. apríl 2017 09:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baptistaprestur, uppistandarar og gjörningar verða í opinni vísindaferð Ungra Pírata Föstudaginn langa næstkomandi, 14. apríl. „Ungir Píratar telja það tímaskekkju að ríkið segi fólki til um hvað það geri í frítíma sínum. Það er í góðu lagi að lögvernda frí, við viljum frí og helst fleiri frídaga, og það er ekkert að því að hafa þá um páska, en að segja fólki að það megi ekki hittast og skemmta sér á Föstudaginn langa er eins og að segja að ekki megi borða á Ramadan.“ segir Ásmundur Guðjónsson varaformaður Ungra Pírata, hann bætir við:

„Við teljum tímabært að breyta íslenskum lögum um helgidaga, leyfa skemmtanahald, bingó og þess háttar á helgidögum.“

Vantrú hefur undanfarin ár boðið fólki á bingó á Austurvelli á Föstudeginum langa. Mynd/DV

Viðburðurinn stendur frá klukkan 20:30 til 22:30 á föstudagskvöldið í höfuðstöðvum Pírata að Síðumúla 23. Ungir Píratar vilja með þessu hjálpa fólki að komast í gírinn fyrir djammið um leið og það verður leyfilegt. Ungir uppistandarar og prestar munu vera með erindi, en viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Vantrú. Vantrú lýsir með þessu ekki yfir stuðningi við Pírata heldur fylgir þeirri stefnu sinni að vera í samstarfi með öllum félagasamtökum sem vilja stuðla að afnámi laga sem banna skemmtanahald á helgidögum.

Í yfirlýsingu frá Ungum Pírötum kemur í fram að öllum er frjálst að koma og taka þátt. Bjór verður í boði svo lengi sem birgðir endast en fólk hvatt til að koma með sínar eigin veigar, áfengar eða óáfengar. Þeir sem vilja vera með erindi geta verið í samband við Unga Pírata, hvort sem það er hugvekja um trúfrelsi eða bara gott grín.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Heillandi fól

Óttar Guðmundsson skrifar: Heillandi fól
Eyjan
Fyrir 1 viku

Safna undirskriftum til að skora á Alþingsmenn að stöðva málþófið

Safna undirskriftum til að skora á Alþingsmenn að stöðva málþófið