fbpx
Mánudagur 07.júlí 2025
Eyjan

Fjármálaráðherra fagnar skýrslu um opinber eftirlitsgjöld: Gáttaður á leynd

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 5. apríl 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjármálaráðherra með nýju skýrsluna á fundi FA í gær. Mynd fengin af heimasíðu FA.

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra hefur tekið fagnandi nýrri skýrslu Félags atvinnurekenda um eftirlitsgjöld opinbera geirans. Honum þykir með fádæmumað opinber eftirlitsfyrirtæki skuli hunsa óskir um að þær birti gjaldskrár og ætlar að beita sér fyrri úrbótum í þeim efnum.

Þetta var meðal þess sem kom fram í máli ráðherrans í ræðu sem hann hélt á fundi félagsins í gærmorgun.

Nýlega hefur ríkið í tvígang verið dæmt til að endurgreiða oftekin eftirlitsgjöld.

Skýrslan er gagnleg að því leyti að þetta er ekki eins og stundum er, einhver einhliða áróður. Hér er mjög málefnalega tekið á þessu málefni og beinlínis sagt hvað sé skynsamlegt að gera. Ég mun sannarlega taka það til mín inni í ráðuneytinu og reyna að beita mér fyrir því að menn vinni með þeim hætti sem þarna er sagt,

sagði Benedikt. Hann kom einnig inn á það eftirlitsstofnanirnar yrðu líka að vera undir eftirliti. Þeir aðilar sem þessar stofnanir fylgdust með þyrðu ekki alltaf að gefa álit sitt á starfsemi eftirlitsstofnanna til kynna af ótta við hefndaraðgerðir.

Fjármálaráðherra vill einnig að gjaldskrár eftirlitsstofanna séu gerðar opinberar. Matís, sem er opinbert hlutafélag sem annars eftirlit og rannsóknir fyrir Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit neiti t. a. m. að birta sína gjaldskrá.

Ég verð nú að segja að ég er gáttaður á að opinberir aðilar skuli ekki vilja birta gjaldskrár, ekki einu sinni þegar eftir þeim er leitað. Ég verð að segja að mér finnst það með fádæmum og ég mun svo sannarlega beita mér í því. Það er ekki bara gagnstætt góðri stjórnsýslu, það er gagnstætt öllum mínum prinsippum ef einhver sem er að vinna fyrir okkur öll – og eftirlitsmennirnir eru svo sannarlega að vinna fyrir samfélagið – að það eigi að vera einhver leynd yfir því hvernig menn vinna. Þannig er ekki nútímasamfélag og þetta verðum við að laga,

sagði fjármálaráðherra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Golfhöggið á Hönnu Katrínu geigaði – „Kannski komumst við í fyrramálið“

Golfhöggið á Hönnu Katrínu geigaði – „Kannski komumst við í fyrramálið“
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Svarthöfði: Óhamingjusamur málþófsmaður í prívat hagsmunagæslu

Svarthöfði: Óhamingjusamur málþófsmaður í prívat hagsmunagæslu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Krónutjónið nemur 500 milljörðum árlega

Sigmundur Ernir skrifar: Krónutjónið nemur 500 milljörðum árlega
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Heillandi fól

Óttar Guðmundsson skrifar: Heillandi fól
Eyjan
Fyrir 1 viku

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nýtt kaupaukakerfi í Íslandsbanka ofan á 12 prósenta kauphækkun stjórnenda

Orðið á götunni: Nýtt kaupaukakerfi í Íslandsbanka ofan á 12 prósenta kauphækkun stjórnenda