fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Píratar skilgreindir í hóp lýðskrumsflokka Evrópu

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 30. janúar 2017 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Norska stórblaðið Verdens Gang sem er einn stærsti og áhrifamesti fjölmiðill Noregs skilgreinir Pírata á Íslandi sem einn af lýðskrumsflokkum Evrópu.

Píratar eru þannig eini skilgreindi lýðskrumsflokkurinn á Norðurlöndum. Verdens Gang setur Pírata í hóp með „hægri öfgaflokkum“ á borð við UKIP í Bretlandi, Þjóðfylkinguna í Frakklandi, Frelsisflokkinn í Hollandi, Podemos á Spáni, Valkost fyrir Þýskaland í Þýskalandi, Frelsisflokkinn í Austurríki, Fimm stjörnu fylkinguna á Ítalíu og Syriza í Grikklandi.

Verdens Gang skrifar að Píratar á Íslandi hafi verið stofnaðir árið 2012 af aðgerðasinnum, stjórnleysingjum og fyrrum tölvuþrjótum. Flokkurinn hafi verið efstur í skoðanakönnunum fyrir þingkosningar á Íslandi í október 2016 en endað í 14,5 prósentum greiddra atkvæða. Verdens Gang segir að Píratar séu lýðskrumsflokkur en þó hvorki til hægri né vinstri. Flokkurinn sé leiddur af ljóðskáldinu Birgittu Jónsdóttur.

Tilefni þess að Verdens Gang leggst í þessar pælingar er að blaðið beinir athygli að því í grein sem birtist á vef þess að Frelsisflokkurinn í Hollandi sem sé lýðskrumsflokkur undir formennsku hins umdeilda íslamsandstæðings Geert Wilders, geti nú hæglega unnið sigur í hollensku þingkosningunum í mars og náð 34 af 150 sætum í þinginu.

Geert Wilders hefur líkt Kóraninum við Mein Kampf eftir Adolf Hitler og ítrekað verið dreginn fyrir dóm ákærður fyrir boðun kynþáttahaturs.  Verdens Gang skrifar að Frelsisflokkur Wilders leiði nú allar skoðanakannanir í Hollandi.

Fyrirsögn greinar blaðsins hljóðar svo yfir stórri mynd af Geert Wilders:

Hann getur orðið „næsti Trump“

Kort Verdens Gang yfir lýðskrumsflokka Evrópu.

Norðmenn telja þannig að Geert Wilders og Donald Trump eigi fleira sameiginlegt en athygli verðar hárgreiðslur. Verdens Gang hefur eftir hollenskum stjórnmálafræðing sem hefur sérhæft sig í lýðskrumsflokkum að Trump og Wilders tali báðir um vonda „elítu“ sem hunsi og misnoti almenna borgara. Báðir séu miklir þjóðernissinnar haldnir sterkri útlendingaandúð. Íslam sé höfuðóvinur Wilders á meðan Trump heyji sína baráttu gegn Mexíkönum. Báðir þessir stjórnmálamenn skipi þjóðum sínum í andstæðar fylkingar. Þeir séu einnig hvor fyrir sig duglegir að notfæra sér samskiptaforritið Twitter því þeir álíti að hefðbundnum fjölmiðlum sé ekki lengur treystandi til að fara með rétt mál.

Lýðskrumsflokkar Evrópu eru taldir eiga viðburðaríkt og hugsanlega fengsælt ár framundan. Ástæðan er sú að á árinu verður gengið til kosninga vítt og breitt um álfuna þar sem lýðskrumarar og snákaolíusölumenn geta látið ljós sín skína.

Þann 15. mars eru þingkosningar í Hollandi. Frakkar ganga til forsetakosninga 23. apríl. Einhvern tímann milli 24. ágúst og 22. október verða haldnar Sambandsþingkosningar í Þýskalandi. Í september er fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort Katalónía eigi að lýsa yfir sjálfstæði frá Spáni og loks verða Stórþingskosningar í Noregi þann 11. september.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki