fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
Eyjan

Katrín fær umboðið, en stjórnarmyndun veltur á Viðreisn

Egill Helgason
Þriðjudaginn 15. nóvember 2016 16:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekki verður öðru trúað en að Bjarni Benediktsson missi stjórnarmyndunarumboðið í dag. Bjarni er búinn að bera víurnar í Vinstri græn, að einhverju leyti Framsókn líka og hann hefur átt í viðræðum við Bjarta Framtíð og Viðreisn sem sigldu í strand í dag. Ekki verður séð að aðrar leiðir séu honum færar – að minnsta kosti ekki að sinni.

Líklega verður umboðið komið í hendur Katrínar Jakobsdóttur í kvöld eða í síðasta lagi á morgun. Katrín og aðrir forystumenn VG hljóta að hafa teiknað upp möguleikana sem eru á stjórnarmyndun, en allt veltur það í raun á Viðreisn – hvort hún sé tilbúin að fara í samstarf við vinstri flokkana og Pírata. Framsókn er tæplega inni í myndinni, þannig að eina stjórnarmynstrið sem Katrín getur boðið upp á er VG, Píratar, Björt framtíð, Viðreisn og Samfylking – fimm flokka ríkisstjórn.

Nema þá að menn fari að íhuga boð Pírata um að veita minnihlutastjórn hlutleysi.

Þetta er frekar þröng staða, og satt að segja ekkert sérstaklega miklar líkur á að Katrínu takist þetta. En hún hlýtur að fá nokkurn tíma til að spreyta sig – því það verður að segjast eins og er að Bjarni hefur fengið ágætt svigrúm.

 

fc765c70cd-380x230_o-1

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Lögregla rúin trausti

Lögregla rúin trausti
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ragnar sakar Jón um að tala niður til þjóðarinnar og Jón minnir á söguna um litlu gulu hænuna

Ragnar sakar Jón um að tala niður til þjóðarinnar og Jón minnir á söguna um litlu gulu hænuna
Eyjan
Fyrir 1 viku

„Hinn gullni tími“ – Trump missir sig í Hvíta húsinu

„Hinn gullni tími“ – Trump missir sig í Hvíta húsinu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Bergþór bergmálar málflutning SFS um ofurlaun í fiskvinnslu – „Þetta eru bara orðin hálauna- og, að miklu leyti, kvennastörf“

Bergþór bergmálar málflutning SFS um ofurlaun í fiskvinnslu – „Þetta eru bara orðin hálauna- og, að miklu leyti, kvennastörf“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Formaður Sjálfstæðisflokksins fór í vikulangt frí daginn áður en eitt stærsta mál þessa þings var tekið til fyrstu umræðu

Formaður Sjálfstæðisflokksins fór í vikulangt frí daginn áður en eitt stærsta mál þessa þings var tekið til fyrstu umræðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vilhjálmur brýnir sinn gamla flokk – Vill að meira verði gert fyrir Breiðholtið

Vilhjálmur brýnir sinn gamla flokk – Vill að meira verði gert fyrir Breiðholtið