Heyr himna smiður er eitthvert stórkostlegasta lag Íslands. Það er einhver eilífð í því, manni finnst eins og lagið hafi alltaf verið til og það hljóti alltaf að vera til.
Samt er það ekki svo, þótt tilurð lagsins spanni aldir Íslandssögunnar.
Ljóðið er samið af Kolbeini Tumassyni, foringja Ásbirninga, áður en hann gekk til Víðinesbardaga þar sem hann fékk stein í höfuðið og féll – eða svo er sagt. Sagan er altént góð þannig. Þetta er einfaldur og tær kveðskapur sem talar beint til okkar, þótt liðin séu 800 ár.
Þorkell Sigurbjörnsson setti lag við kvæðið fyrir fáum áratugum, en Þorkell lést fyrir tveimur árum. Einhvern tíma heyrði ég að lagið hefði komið í huga Þorkels þegar hann sat undir stýri á bifreið, en það kann að vera misminni. En lagið hans er á góðri leið með að verða heimsfrægt, öðruvísi getur það eiginlega ekki verið. Þetta er söngur fyrir aldirnar, verður til eftir önnur 800 ár.
Hér er reyndar mjög skrítin útgáfa af því. Íslenski textinn fær ekki að vera með, enda er hann lítt skiljanlegur öðrum þjóðum, heldur er sungið við texta Pharrels Williams að laginu Happy sem er eitthvert vinsælasta dægurlag seinni tíma, með svo mikið sem 765 milljón skoðanir á YouTube.