fbpx
Sunnudagur 21.desember 2025
Eyjan

Sjálfstæðisflokkurinn og sambandið við menninguna

Egill Helgason
Miðvikudaginn 1. október 2014 15:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einu sinni var Sjálfstæðisflokkurinn afar menningarlegur. Hann hafði sína intelligensíu. Þar var fremstur í flokki ritstjórinn, skáldið og húmanistinn Matthías Johannessen. Nálægt flokknum voru jöfrar úr menningarlífinu eins og Tómas Guðmundsson og Kristján Karlsson. Mogginn var afskaplega menningarlegur. Sjálfstæðismenn heldu úti bókaforlaginu AB sem gaf  fjölda frábærra rita.

Þessi þráður slitnaði ekki svo glatt – bæði Davíð Oddsson og Björn Bjarnason voru báðir í mjög góðu talsambandi við menninguna og listalífið.

En nú er eins og dofnað hafi yfir þessu. Maður verður ekki var við ýkja mikinn menningaráhuga innan Sjálfstæðisflokksins. Það er eins og flokksmenn telji að menningin sé stimpluð til vinstri og þannig hljóti það að vera – sem er einkennilegt í ljósi þess að sú menning sem við stundum er að miklu leyti háborgaraleg eins og Matthías og félagar skildu.

Í staðinn eru komnir menn eins og Elliði Vignisson sem dreifa um sig speki eins og að „listamenn séu ekki heilagar kýr“– hvað sem það þýðir – og vekur, að því virðist, fögnuð flokksmanna með þessu. Að minnsta kosti heyrir maður þá ekki andmæla því sem frá honum kemur í þessum efnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Stjórnmálamaður ársins á Íslandi og atvinnurekandi ársins 2025

Orðið á götunni: Stjórnmálamaður ársins á Íslandi og atvinnurekandi ársins 2025
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hjálmar Sveinsson býður sig ekki fram til borgarstjórnar

Hjálmar Sveinsson býður sig ekki fram til borgarstjórnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Séra Örn Bárður Jónsson: Vissi lítið um trú – fékk opinberun og venti kvæði sínu í kross

Séra Örn Bárður Jónsson: Vissi lítið um trú – fékk opinberun og venti kvæði sínu í kross
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svandís hættir sem formaður VG

Svandís hættir sem formaður VG
Eyjan
Fyrir 1 viku

Karl Ágúst Úlfsson: Aldurinn farinn að segja til sín – eins gott að þú ert að hætta

Karl Ágúst Úlfsson: Aldurinn farinn að segja til sín – eins gott að þú ert að hætta
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Litli hluthafinn rýfur málhvíldina

Þorsteinn Pálsson skrifar: Litli hluthafinn rýfur málhvíldina