fbpx
Laugardagur 12.júlí 2025
Eyjan

Hvernig seðlabankastjóra?

Egill Helgason
Sunnudaginn 15. júní 2014 09:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef ég skil rétt ætlar Már Guðmundsson seðlabankastjóri að tilkynna í sjónvarpsþættinum Eyjunni í  dag hvort hann sækir aftur um stöðuna.

Hún var auglýst nú í vor og umsóknarfrestur er að renna út.

Nú veit maður ekki hvað hefur gerst bak við tjöldin, en margt bendir til þess að ríkisstjórnin vilji losna við Má – að minnsta kosti framsóknarhelmingur hennar.

Milli Más og Bjarna Benediktssonar mun vera betra samband.

Eitt er þó víst að næsta seðlabankastjóra bíður meira af því sama.

Hann þarf að reyna að hafa hemil á ofþenslu sem er fara af stað í hagkerfinu og er aðallega merkjanlega á húsnæðismarkaði.

Ef verða reist hér fjögur kísiliðjuver eins og virðist stefna erum við að tala um mikla þenslu  – þá er varla von á öðru en hressilegum vaxtahækkunum. Það verður erfitt að haldast innan verðbólgumarkmiðs.

Og við erum enn í umhverfi þar sem ríkja gjaldeyrishöft og þar sem peningar lífeyrissjóða er í örvæntingarfullri leit að ávöxtun – að ekki sé talað um erlendu kröfuhafana sem bíða eftir því að fá sitt.

Það þarf líka að hafa hemil á íslensku krónunni – Seðlabankinn fyrir hrun reyndist ófær um það, en raunar er ljóst að krónan færa aldrei að fljóta aftur.

Eftir hverju eru menn þá að leita í fari seðlabankastjóra?

url-12

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Standi ekki steinn yfir steini í „eftiráskýringu“ Hildar – „Þannig að eitthvað passar ekki alveg þarna“

Standi ekki steinn yfir steini í „eftiráskýringu“ Hildar – „Þannig að eitthvað passar ekki alveg þarna“
Eyjan
Í gær

Segir ljóst að aðilar úti í bæ séu að stýra stjórnarandstöðunni – „Það gengur ekki að sérhagsmunaöflin stýri landinu“

Segir ljóst að aðilar úti í bæ séu að stýra stjórnarandstöðunni – „Það gengur ekki að sérhagsmunaöflin stýri landinu“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ný vefsíða skýrir Málþóf í hnotskurn – Og tekur saman kostnað Alþingis meðan málþófið stendur

Ný vefsíða skýrir Málþóf í hnotskurn – Og tekur saman kostnað Alþingis meðan málþófið stendur
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Illugi Jökulsson: „Dómadagsþvaður“ frá þingmanni í ræðustól Alþingis – skyldi maðurinn ekki skammast sín?

Illugi Jökulsson: „Dómadagsþvaður“ frá þingmanni í ræðustól Alþingis – skyldi maðurinn ekki skammast sín?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Málþófið tætir fylgið af Sjálfstæðisflokknum – líka í borginni

Orðið á götunni: Málþófið tætir fylgið af Sjálfstæðisflokknum – líka í borginni
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Foringjakreppa í flokknum

Óttar Guðmundsson skrifar: Foringjakreppa í flokknum