Háhyrningar eru grimmar skepnur – enda kallast þeir killer whales á ensku. Þeir eru efst í fæðukeðjunni, þ.e. engin önnur dýr í vistkerfi þeirra ógna þeim. Háhyrningar fara í flokkum eins og úlfar, þeir veiða ekki bara fisk sér til matar, heldur lika sjávarspendýr – jafnvel stóra hvali.
Háhyrningur eins og Tilikum er ekki góður eða vondur – hann fylgir einfaldlega eðli sínu. Það er ekki við hann að sakast þótt hann hafi drepið þrjá menn, þar á meðal þjálfara sinn. Sökin er alfarið þeirra sem fór svo nálægt hvalnum, voru svo kjarkaðir eða svo heimskir.
Hvað á að gera við skepnu, sýningardýr, sem drepur þrjá menn? Er hægt að refsa henni?
Jú, það er auðvitað hægt að svæfa hann eins og stundum er sagt þegar dýr eiga í hlut – drepa hann.
En svo er líka hægt að senda hann í útlegð til Íslands, þaðan sem hann kom víst upprunalega. Hann getur þá svamlað hérna aðeins í sjónum áður en hann drepst. Keikó komst reyndar alla leið til Noregs áður en hann gaf upp öndina.