Þórður yfirkennari kom inn, náfölur.
Það er búið að skjóta hann!
Skjóta hvern? spurði skólastjórinn kuldalega.
Kennedy forseta.
Í sama vetfangi fylltist kennarastofan af kennurum sem voru að ljúka kennslu og fréttin laust þá hvern af öðrum. Allir söfnuðust kringum útvarpstækið. „Hvað verður um Jacqueline og börnin?“ spurði skólastjórinn hrærður. Sumir spáðu heimsendi. Þeir læddust út.
– Pétur Gunnarsson, Punktur punktur komma strik, 1976.