Það verður gaman að sjá hverjir mæta á landsleikinn við Króatíu á Laugardalsvellinum.
Þarna verða næturmenn – þeir sem eru enn hangandi tölvum síðla nætur, hvaða erindi sem þeir eiga þar.
Þarna verða sérstakir vildarvinir og styrktaðilar KSÍ.
Og þarna verða þeir sem hafa lagt í að kaupa rándýra miða á svörtum markaði.
Mjög sérstætt þversnið af þjóðinni.
Samkvæmt Wikipedia tekur Laugardalsvöllur aðeins 9.800 gesti í sæti. Það er hægt að bæta við fleiri, en það er sjaldnast gert vegna reglna Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA.
Líklega væri hægt að selja 30 þúsund miða á þennan leik – ef ekki fleiri.En völlurinn er ekki stærri en þetta og miðarnir semsagt mjög takmörkuð gæði – sem KSÍ virðist hafa mistekist illa við að ráðstafa með skynsömum hætti.
Hins vegar er varla neitt vit í að stækka Laugardalsvöllinn – ekki nema svona stórleikir verði aðeins algengari.