fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Stjórnarandstaðan tefur varla

Egill Helgason
Þriðjudaginn 22. október 2013 08:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Menn geta gert of mikið úr því að forsætisráðherra fari í stutt frí. Það er öllum hollt að hvíla sig, fara burt, öðlast fjarlægð á verkefni. Skynja að heimurinn er stór – og að Ísland er fjarri því að vera nafli alheimsins.

Sigmundur Davíð birtist aftur í viðtali og er býsna herskár.

Enn sem komið er kýs hann að loka augunum fyrir þeirri staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn er afar tregur til að fara í boðaðar skuldaniðurfellingar Framsóknarflokksins. Margir sjálfstæðismenn tala beinlínis á móti þeim, opinskátt, Bjarni Benediktsson er með alls kyns fyrirvara – milli orða hans og þess sem Sigmundur segir er áberandi ósamhljómur.

Það er þetta sem vekur athygli og spurn um hvort Sjálfstæðisflokkurinn ætli að fara í þennan leiðangur. Og þá er þess að gæta að fylgi Framsóknarflokksins byggist algjörlega á því að skuldaniðurfellingarnar verði að veruleika, en það er engin sérstök krafa til Sjálfstæðisflokksins að hann skili einhverju í þessu máli. Skuldamálin gætu meira að segja valdið hatrömmum deilum innan Sjálfstæðisflokksins.

Sigmundur velur þá leið að hnýta í stjórnarandstöðuna. Hann segist vonast til að hún verði „samvinnuþýð og þvælist ekki fyrir“. Hann segir að áhyggjur Bjarna Benediktssonar beinist að stjórnarandstöðunni.

En það eru litlar líkur á að stjórnarandstaðan tefji málið. Hún er veikluð og ósamstæð og hefði varla annað vopn til þess en málþóf. Hún stendur varla í veginum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð