fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Skoðanakönnun sýnir vonbrigði með ríkisstjórnina

Egill Helgason
Sunnudaginn 20. október 2013 18:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar er ansi slæm fyrir ríkisstjórnina, en þó ekki síst Framsóknarflokkinn og forsætisráðherrann, formann hans.

Framsóknarflokkurinn er samkvæmt henni kominn niður í 15 prósenta fylgi, tapar tíu prósentustigum frá kosningunum. Hann er semsagt að komast á þær slóðir sem hann var áður en fylgisaukningin mikla var á mánuðunum fyrir kosningarnar. Það fylgi fékk hann mestanpart vegna loforða um skuldaniðurfellingar.

Sjálfstæðisflokkurinn er með 23 prósent, þremur prósentustigum minna en í kosningunum í vor. Samkvæmt þessu leitar tapað fylgi Framsóknar ekki þangað.

Skoðanakönnuni sýnir að Framsókn á ekki annarra úrkosta völ ef hann vill eiga möguleika á að halda fylginu en að efna kosningaloforð sín. En það er ekki auðvelt. Sjálfstæðisflokkurinn stímir hvað eftir annað inn í hliðina á Framsókn vegna skuldamálanna.

Ríkisstjórnin er svo samanlagt ekki með nema 38 prósent. Það er harla lítið svo snemma á kjörtímabilinu. Fylgið reytist burt jafnvel enn hraðar en hjá þeim Jóhönnu og Steingrími. Og áttu þau ekki sjö dagana sæla hvað það varðar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki