
Kjartan Gunnarsson er einn þeirra sem ber höfuðábyrgð á Icesave og þeim búsifjum sem þjóðin verður fyrir vegna þess.
Margir telja að rétt sé að draga þá sem skuldsettu þjóðina með þessum hætti fyrir dóm. Það mætti jafnvel hugsa sér að þeir hefðu gerst sekir um einhvers konar landráð.
Páll Skúlason, prófessor í heimspeki, hefur orðað þá hugsun.
Þarna les maður um að hann hafi verið að leggja öðru fólki lífsreglurnar á fundi hjá Sjálfstæðisflokknum. Líklega óttast hann, sem ásamt félögum sínum hefur nánast komið Íslandi á vonarvöl, að Íslendingar tapi sjálfstæðinuinu.
Var hann ekki örugglega með hauspoka?
En flokkur sem hossar Kjartani eftir það sem á undan er gengið – hann mun eiga í miklum vandræðum með trúverðugleikann.
Hvað næst?
Jón Ásgeir á almennum félagsfundi hjá Reykjavíkurdeild Samfylkingarinnar?
Ólafur Ólafsson og Finnur taka slag í næstu Framsóknarvist?
Hvernig var annars á þessum fundi:
Spurði einhver Kjartan um Icesave – eða almennt um sukkið og svínaríið í Landsbankanum?