
Ég er ekki viss um að það sé rétt að staða Þorgerðar Katrínar hafi veikst innan Sjálfstæðisflokksins.
Að minnsta kosti ekki meðal almennra kjósenda.
En kannski gagnvart Davíð Oddssyni, Birni Bjarnasyni og Styrmi Gunnarssyni.
En reyndar voru sumar ræður sjálfstæðismanna í þinginu í gær þannig að það hefði verið nær að keyra þá heim til Davíðs og láta þá tala þar á stofugólfinu; hefði verið hægt að bjóða Birni og Styrmi að vera með.
Því eitt er það sem forysta Sjálfstæðisflokksins finnst alveg óbærilega erfið tilhugsun:
Að Davíð snúi aftur í stjórnmálin.