
Sérstakur saksóknari er að rannsaka Ímon, Lífeyrissjóði Landsbankans, Kaupþing og Al Thani, Sjóvá, Stím – það er verið að kalla skuldakónga til yfirheyrslu.
Þetta gefur von um að hlutirnir séu að hreyfast.
Ég ætla ekki að þakka stjórnmálaflokkunum fyrir þetta, allavega ekki hrunflokkunum þremur sem hafa aldrei sýnt áhuga á að neitt verði rannsakað, heldur frekar öflugu almenningsáliti – jú, svo má vel nefna nafn Evu Joly í þessu sambandi.