
Það er eiginlega makalaust að ritstjóri fjölmiðils í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar skuli skrifa að erlendur sérfræðingur skilji ekki íslenskt réttarkerfi.
Hvað er að skilja? Hvað er svona einstakt við það?
Eitt einkenni þess er hvað það á erfitt með að taka á fjársvikum og hvítflibbabrotum.
Hvernig fór aftur fyrir kerfinu í Baugsmálinu?
Er það Mme Joly sem veldur því að hér ríkir tortryggni?
Eða er kannski hugsanlegt að Baugsmálið hefði endað öðruvísi ef ákæruvaldið hefði á þeim tíma notið aðstoðar erlendra sérfræðinga gegn ofurvaldi peningaaflanna og fjölmiðla þeirra?
Annars þarf þetta ekki að koma á óvart. Ritstjóri Fréttablaðsins hefur alltaf staðið dyggilega með eigendunum – fjárglæframönnunum – sem eiga blaðið. Það breytist ekkert. Skemmst er að minnast leiðarans sem hann skrifaði um fólk með heykvíslar nokkrum dögum eftir hrunið.
Þá fannst ritstjóranum alveg út í hött að mótmæla einu eða neinu, enda væri þetta ekki síst almenningi að kenna.
Tímasetning leiðarans kemur heldur ekki á óvænt, nú þegar hrúgast inn til sérstaks saksóknara mál sem varða eigendur blaðsins og félaga þeirra.