
4,5 milljónir verða að 7 milljónum á 6 mánuðum
Eitt helsta vandamál íslenskra heimila sem skulda í bankakerfinu og hafa lent í vanskilum er enn algerlega óleyst. Það er hækkun lána vegna dráttarvaxta og lögfræðikostnaðar. Ég er með lán í einum ríkisbankanna sem stóð í 4,5 milljónum í ágúst s.l. Eftir hrun minnkuðu tekjur hratt og ég gat ekki greitt af láninu. Þá hlóðust dráttarvextir á lánið og einnig lögfræðikostnaður. Nú stendur það í 7 milljónum, með lögfræðikostnaði upp á 1,3 milljónir fyrir það eitt að rita 3 bréf + uppboðsbeiðni. Bréfin voru rituð af nýútskrifuðum lögfræðingi sem hefur 8 mánaða starfsreynslu. Ekki einu sinni Arnaldur Indriðason fær svona hátt kaup fyrir að skrifa texta.
Í samtali við lögfræðideild bankans kom fram að það hefðu ekki komið fram neinar fyrirskipanir frá yfirstjórn ríkisbankans um að slá almennt af kostnaði sem þessum. Ekki var einu sinni hægt að slá lögfræðikostnað niður um 300 þús – niður í 1 milljón. Allt skal greitt í topp þar til „línur koma um annað“ sagði lögfræðideildin.
Löggjöf sem Björgvin setti um þak á innheimtukostnað hefur engin áhrif því lögfræðideildirnar hafa fundið leið framhjá þeim lögum – með því að nefna kostnaðinn öðru nafni, velja aðra gjaldaliði þegar reikningar fyrir lögfræðiþjónustuna eru útprentaðir.
Til fjármálaráðherra sem les þetta blogg: Það þarf að setja lög/reglugerð gegn þessari hegðan bankanna, annars lendir a.m.k. þriðjungur þjóðarinnar í því að lán þeirra hækka um nokkrar eða margar milljónir vegna lögfræðikostnaðar og dráttarvaxta. Þetta heitir skuldafangelsi.
— — —
Eftir Marcuse
Ég rakst á þessa línu eftir Herbert Marcuse(1898-1979) um daginn og varð einhvern veginn bilt við. Datt í hug að þú vildir kannski lesa hana : “ Law and order are everywhere the law and order which protect the established hierarchy”
Er þetta ekki eitthvað sem ætti að skoða?
— — —
Krefjumst heiðarlegs uppgjörs
Fólkið sem taldi sig eiga Ísland með húð og hári, er farið að finna hitna verulega undir sér. Það þýðir einfaldlega að við erum að nálgast sum samfélagsmeinin.
Höldum hiklaust áfram og krefjumst áfram heiðarlegs uppgjörs með öllum tiltækum ráðum. Stjórnmálamenn með óhreinar hendur munu halda áfram að reyna að hindra framgang réttvísinnar, alveg eins og fyrrum viðskiptamógúlar sem og innmúraðir embættismenn og skuggabandalög þeirra.
Gefumst ekki upp því hálfnað er verk þá hafið er!
Eva Joly er ekki hér í einkaerindum, heldur til að vinna þjóðinni gagn, svo að einn ömurlegasti fjármálaskandall Evrópu, endi ekki í hreinni og klárri borgarastyrjöld og verði þjóðinni um leið að fjörtjóni.