
Sigmundur Davíð gengur mjög ötullega fram í sinni stjórnarandstöðu. Í dag segir hann að fjari undan ríkisstjórninni – í vikunni sagði hann að markmið sitt væri að fella hana.
Jú, almennt hlýtur það að vera markmið stjórnarandstöðuflokka.
En kannski ekki endilega mánuði eftir að ríkisstjórn er tekin við. Er ekki venja að ríkisstjórnir fái aðeins meiri tíma en það.
Svo er líka spurning um hvaða valkost Sigmundur býður upp á, hvernig ætti sú stjórn að vera samansett?