
Ólafur Hauksson, sérstakur saksóknari, segir að ekki hafi enn verið tilefni til að kyrrsetja eignir.
Gott og vel.
En það mætti kannski fara að ræða hvernig fyrrum eigendur og stjórnendur Landsbankans hafa hugsað sér að greiða sinn hlut af Icesave?
Eða þarf kannski að hjálpa þeim til þess? En maður gerir ráð fyrir að þeir sjálfir telji rétt og sjálfsagt að þeir greiði meira en aðrir. Eða varla vilja þeir vera þekktir fyrir að láta íslenska alþýðu borga fyrir sig.
Annars skilur maður ekki hvað er í gangi þegar maður les svona vitleysu. Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjórinn sem seldi hlutabréf sín í Landsbankanum á tíma þegar hann að líkindum bjó yfir mikilvægum innherjaupplýsingum, á aftur að setjast í feita stöðu í ráðuneyti.