
Árni Guðmundsson kom í Silfur Egils í vetur. Hann var með hugmyndir um hvernig væri hægt að standa að skuldafskriftum vegna fyrirtækja sem eru í vandræðum.
Ég ætla að birta þetta enn einu sinni – og það er ærið tilefni til – í ljósi upphrópana um ríkissósíalisma og í ljósi þess hvernig mál eru að þróast hjá ríkisbönkunum og ríkisstjórninni:
— — —
Hugmynd: Gagnagrunnur um skuldaafskriftir
Ástæða hugmyndar: Verja jafnræði og endurvekja traust á helstu viðskiptabönkum þessa lands.
Megininntak: Búinn verði til gagnagrunnur þar sem komi fram upplýsingar um:
(1) heildarfjárhæð afskrifaðara skulda hvers fyrirtækis í ISK
(2) hlutfall afskrifaðara skulda af heildarskuldum
(3) hlutfall af hlutafé sem ríkið eða fjármálastofnanir þess yfirtaka í viðkomandi fyrirtæki vegna afskriftanna
(4) eignarhald á viðkomandi fyrirtæki fyrir og eftir afskriftir
(5) ákvörðun afskrifta skuldanna þ.e. af hverjum er hún tekin og hvers vegna
Framkvæmdarleg skilyrði: Nauðsynlegt er að þessar upplýsingar séu
A ) skráðar í grunninn um leið og ákvörðun hefur verið tekin um afskrift skulda og
B) öllum aðgengilegar til þess að eftirlitið eða aðhaldið með athöfninni nýtist sem best.