
Ef það er eitthvað sem fólk meikar ekki núna þá er það gamaldags stjórnar/stjórnarandstöðu þvergirðingur.
Í stjórnmálum á Íslandi hefur löngum tíðkast það viðhorf að allt sem kemur frá andstæðingnum sé vitleysa.
Sem ekki eigi að hlusta á – og alls ekki samþykkja.
Borgarahreyfingin er í þeirri skemmtilegu stöðu á þingi að hún getur gert grín að þessu kerfi og afglapahættinum í kringum það.
Afhjúpað hvernig sumir þingmenn breytast í hænsn.
Birgitta Jónsdóttir skrifar pistil um þetta í DV í dag – um innhaldslausar ræður sem hún þurfti að hlusta á fyrstu daga þingsins. Lítinn bút af honum má lesa hér.
En hún er ekki bara neikvæð. Hún hrósar Tryggva Herbertssyni fyrir að vera málefnalegur.
Og það má Tryggvi eiga, hann kemur með hugmyndir og vel rökstuddar ábendingar – sem stjórnarflokkarnir verða að hlusta á.