
Félagsmálaráðherra segir að brask með gjaldeyri sé ábatasamasti atvinnuvegurinn.
Þetta virðist samt ekki vera mjög stórt, viðskiptin snúast um nokkra hundrað þúsund kalla.
En það má setja þetta í samhengi.
Á sama tíma í fyrra var bask með gjaldeyri nefnilega stærsta atvinnugrein á Íslandi, raunar sú langstærsta.
Enginn annar atvinnuvegur velti slíkum upphæðum. Hundruðum milljarða.
Þetta var þegar bankar og eignarhaldsfélög lögðust á eitt um að taka stöður gegn krónunni.
Sem sökk eins og steinn fyrir vikið.
Hvað sagði Árni Páll þá?