
Það voru afglöp á sínum tíma að selja Fríkirkjuveg 11 til Bjögganna. Fyrir þeim var þetta aldrei neitt annað en monthús; það tókst með naumindum að koma í veg fyrir áform um að breyta Hallargarðinum í akbraut og bílastæði. Þetta átti að undirstrika að þeir væru einhvers konar Thor Jensenar nútímans. Björgólfur yngri lætur meira að segja kalla sig Thor í útlöndum.
Nú hafa þeir feðgar skilið eftir sviðna jörð á Íslandi. Fyrirtæki þeirra hér eru komin í þrot og skuldirnar ógurlegar.
Fríkirkjuvegur 11 stendur auður og engum til gagns.
Samt hefur borgarstjórn ekki manndóm til að taka undir tillögu Ólafs F. Magnússonar um að Bjöggar skili húsinu.
Sem er það eina sem vit væri í – fyrir alla aðila.