
Hjá Saga Capital, fjárfestingarbankanum akureyrska sem Steingrímur J. hyglaði með svo eftirminnilegum hætti, felldu þeir líka niður ábyrgðir „lykilstarfsmanna“. Það átti semsagt enginn að tapa – bara græða og græða.
Steingrímur veitti bankanum lánafyrirgreiðslu á 2 prósenta vöxtum, muninn á þessu og því sem teljast eðlilegir vextir (12 prósent), færir bankinn í bækur sínar sem „tekjur“.