
Ég veit ekki hver er að gefa erlendum fjölmiðlum þá sérstæðu sögu að Auður Capital muni bjarga Íslandi úr kreppunni. Nú síðast birtir BBC þessa þvælu, áður hefur hún birst í breska blaðinu Independent, minnir mig.
Eigendur fyrirtækisins voru stórir leikendur í banka- og útrásarruglinu eins og hefur margsinnis komið fram.
Fræg er þessi skýrsla sem annar helsti talsmaður Auðar kynnti þegar hún var framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
Gekk út á að höftum og íþyngjandi reglum yrði aflétt af viðskiptalífinu, því yrði í auknum mæli leyft að setja sér sínar eigin reglur, eins og það var kallað, heilbrigðiskerfið yrði einkavætt, sem og menntakerfið og enska tekin upp sem annað tungumál.
Öll framsetningin er eins og blautur nýfrjálshyggjudraumur. Manni verður eiginlega bumbult.
Merkilegt fólk sem á auðvelt með að færa sig úr einni lygasögu yfir í aðra lygasögu. En það kallast víst aðlögunarhæfni.