fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Forstjóri FME um hrunið

Egill Helgason
Föstudaginn 15. maí 2009 14:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Andersen, hinn nýi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, flutti ræðu í gær á fundi hjá Samtökum fjámálafyrirtækja. Þetta hefur vakið furðu litla athygli satt að segja.

Úrdrátt úr ræðu Gunnars má finna á vef  Samtaka fjármálafyrirtækja og þar er líka hlekkur á ræðuna í heild sinni. Þetta kemur meðal annars fram í úrdrættinum:

— — —

„Gunnar Þ. Andersen rakti það sem aflaga fór síðustu ár og hvernig vaxtamunur milli Íslands og annarra ríkja var drifkraftur í innsogi erlends fjármagns til Íslands, sem aftur hafi skapað mikil vandamál. Þá gagnrýndi hann vinnubrögð við einkavæðingu ríkisbankanna og þá áhættusækni sem tíðkaðist í íslenskum fjármálageira síðari ár. Þetta hafi síðan leitt af sér að mörg fyrirtæki í atvinnulífinu hafi skuldsett sig um efni fram og farið út í alls konar fjármálagerninga sem þau höfðu ekki þekkingu á. Allir hafi spilað með. Jafnvel lífeyrissjóðir hafi farið út í skuldsett eignakaup, því meiri áhætta því meiri ávöxtun, og hinn almenni Íslendingur hafi farið að veðja með því að taka húsnæðis- og bílalán í erlendri mynt. Þá hafi lausafjáráhætta verið mikil hjá flestum íslenskum fjármálafyrirtækjum. Síðast en ekki síst hafi íslenska viðskiptalíkanið skort skýra stefnu, sem yfirleitt sé ávísun á að illa fari að lokum. Stærra er betra hafi þannig verið útgansgpunktur. Efnahagsreikningar bankanna hafi verið uppblásnir, með yfirverðlögðum eignum og áhættumeiri lánum en uppgjör greindu frá. Fyrir Fjármálaeftirlitið hafi verið algerlega ómögulegt að hafa eftirlit með markaði sem óx jafn hratt og íslensku bankarnir.

Frá upphafi árs 2008 til dagsins í dag hefði FME framkvæmt 50 vettvangsrannsóknir hjá eftirlitsskyldum aðilum, sem væru í heild 119 í dag. Í kjölfar hruns bankanna hefði álag á starfsfólk FME aukist gríðarlega og sem dæmi hafi heildar vinnustundir starfsmanna í október verið 125% fleiri en í upphafi árs.  Í rannsóknum í tengslum við hrunið hafi m.a. sérstaklega verið horft til millifærslu fjármuna milli landa, breytinga á skilmálum lána, verðbréfa og afleiða, tilfærslna eigna fjárfestingarsjóða og tilfærslna annarra rekstrareigna. FME sé nú komið með í hendurnar ítarlegar skýrslur í þessum efnum hvað varðar stærstu bankana og eigi von á sambærilegum skýrslum um mitt ár hvað varðar þrjú önnur fjármálafyrirtæki. Innihald fyrrgreindra skýrslna hafi veitt FME megnið af upplýsingunum sem nýtast til frekari rannsókna tengdum bankahruninu. Endanlegt markmið sé að koma málum sem varða möguleg afbrot í ferli hjá sérstökum saksóknara. Tíu slík mál hafi nú þegar verið afhent honum og fimm til viðbótar væntanleg í náinni framtíð. Hvað nýju bankana varðar stefni FME að því að gefa þeim„heilbrigðisvottorð“ í næsta mánuði, á grunni úttekta Deloitte og Oliver Wyman.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar