
Hún er merkileg fréttin í Mogganum um erlenda kreppusérfræðinginn Andrew Gracie sem Seðlabankinn fékk til að skoða hugsanlegt fall Glitnis.
Þetta var semsagt talinn raunverulegur möguleiki í kerfinu svo snemma sem í febrúar á síðasta ári, svo raunverulegur að menn voru farnir að funda um þetta.
Það er kemur fram að ráðuneytisstjórar í helstu ráðuneytum fengu þessa kynningu. Samt var lítið sem ekkert aðhafst – nema einn þeirra seldi hlutabréfin sín.
Ríkisstjórnin og bankastjórnendur virðast annars hafa veðjað á að þetta myndi reddast.