fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Að þramma í takt

Egill Helgason
Þriðjudaginn 12. maí 2009 08:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það væri til bóta ef hægt væri að riðla flokkslínum í fleiri málum.

Að ríkisstjórn segi þinginu ekki hvernig það á að sitja eða standa.

Því ríkisstjórnin fer með framkvæmdavald, en Alþingi löggjafarvald.

Sumir þingmenn virðast halda að þetta eigi að vera á hinn veginn.

Einar Kr. Guðfinnsson, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, skrifar grein í Moggann í dag þar sem hann gerir mikið úr því hvað þetta séu ómöguleg vinnubrögð.

Alveg burtséð frá því hvað mönnum finnst um ESB, þá væri til bóta ef hægt væri að afgreiða fleiri mál með þessum hætti.

Þannig að flokkslegur þvergirðingur ráði ekki endilega för.

Ég hef átt samtöl við fólk sem sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á síðustu árum Davíðs Oddssonar sem flokksformanns.

Það hefur nöturlegar minningar um hversu einræðið var orðið sterkt í flokknum, enginn dirfðist að ganga gegn línu formannsins.

Við munum öll frá þeim tíma hvað það var leiðinlegt að heyra þingmenn reyna að verja ýmsar gjörðir sem þeir trúðu ekki á.

Auðvitað er ljóst að þessi afgreiðsla ESB umsóknar helgast af því að stjórnarflokkarnir geta ekki komið sér saman um málið. En um leið mætti hugsa sér að þetta sé vísir að bættri stjórnskipan.

Það er engin stórkostleg dyggð að allir hugsi eins og þrammi í takt.

Frekar vantar okkur minni flokksaga og meiri sjálfstæða hugsun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!